Bæjargil 26

210 Garðabær

Ásett verð: 159.900.000 kr.

Bæjargil 26
Tegund
Raðhús
Stærð
161,7 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
1991
Fermetraverð
988.868 kr.

Lýsing

Bæjargil 26 - Garðabæ

*Bókið skoðun*

STOFAN FASTEIGNASALA KYNNIR: Fallegt og vel skipulagt endaraðhús með innbyggðum bílskúr við Bæjargil 26, Garðabæ.

Eignin er skráð samtals 161,7 fm skv. HMS, þar af er bílskúr 22,2 fm.

Endaraðhús

Innbyggður bílskúr

Stórt bílaplan með hita

4 svefnherbergi

Baðherbergi og gestasalerni

Þak endurnýjað

Gluggar og gler endurnýjað að hluta

Húsið nýlega málað

Neðri hæð

Komið er inn í forstofu og þar inn af er gestasalerni, þvottahús og innangengt í bílskúr.

Forstofa með marmara á gólfi.

Gestasalerni með marmara á gólfi og veggjum að hluta, upphengt salerni og handlaug.

Rúmgott þvottahús með innréttingu fyrir vélar í vinnuhæð, marmari á gólfi og veggjum að hluta.

Gangur / hol með marmara á gólfi.

Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð með marmara á gólfi, útgengt er úr stofu á skjólgóða afgirta verönd, útigeymsla við verönd.

Eldhús er bjart og fallegt með hvítri innréttingu og granítstein á borðum, Miela bakarofn og örbylgjuofn í vinnuhæð, Elica háfur, Miele gaseldavél og helluborð, Miele innbyggð uppþvottavél og tvöfaldur Siemens ísskápur sem fylgir, marmari á gólfi.

Bílskúrinn er snyrtilegur, heitt og kalt vatn, rafmagnsopnun á hlera.

Hiti í bílaplani.

Efri hæð

Gengið er upp stiga með marmara á efri hæð þar sem eru 4 rúmgóð herbergi og baðherbergi.

Hjónaherbergi er rúmgott með harðparketi á gólfi. Útgengt frá hjónaherbergi á rúmgóðar svalir.

Þrjú rúmgóð herbergi með harðparketi á gólfum.

Baðherbergi með marmaraflísum á gólfi og veggjum að hluta, falleg hvít innrétting, marmari á borði, upphengt salerni, sturta með gleri og handklæðaofn.

Endurbætur skv.seljanda

Þak endurnýjað 2022

Húsið málað að utan 2025

Nýtt gler í eldhúsglugga 2026

Bílskúrshurð endurnýjuð 2021

Þakrennur og niðurföll endurnýjað 2016

Skipt um gler og glerlista í þakgluggum í þremur herbergjum efri hæðar ásamt því að endurnýja gúmmí undir listum 2022

Gluggi og gler í bílskúr endurnýjað 2024

Nýtt harðparket á herbergjum efri hæðar 2022

Neðri hæð endurnýjuð 2008 - gólfhiti settur á neðri hæð (nema bílskúr). Innréttingar, tæki og gólfefni.

Þetta er einstaklega fallegt hús á góðum stað í Garðabæ sem ávallt hefur verið vel við haldið og margt endurnýjað.

Stutt er í skóla og helstu þjónustu.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðný Ósk í síma 866-7070 , gudny@stofanfasteignir.is og Atli Þór í síma 699-5080 , atli@stofanfasteignir.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv.gjaldskrá.