NESBAKKI 17 íbúð 301

740 Neskaupstaður

Ásett verð: 41.900.000 kr.

NESBAKKI 17 íbúð 301
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
92,4 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1980
Fermetraverð
453.463 kr.

Lýsing

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu NESBAKKI 17 ÍBÚÐ 301, 740 Neskaupstaður.

Fjögurra herbergja íbúð á efstu hæð í fjölbýlishúsi. Húsið stendur við lítinn botnlanga í grónu hverfi á Neskaupstað.

Skipulag eignar: Anddyri, eldhús, stofa og borðstofa, tvö svefnherbergi, baðherbergi og gangur.

Í sameign: Sér geymsla, vagna- og hjólageymsla.

Nánari lýsing:

Anddyri , fjórfaldur fataskápur frá IKEA, greinatafla.

Eldhús , nýleg Brúnás innrétting, innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, borðkrókur (hilla og vínrekki í eldhúsi fylgja ekki).

Stofa og borðstofa, skápar og hillur fylgja ekki, útgengt er út á suður svalir frá stofu. Gerfigras á svalargólfi.

Herbergi I, hjónaherbergi, þrefaldur fataskápur frá IKEA.

Herbergi II , án fataskáps. Voru upprunalega tvö svefnherbergi.

Baðherbergi er upprunalegt, flísalagt í hólf og gólf, baðkar, salerni og vaskinnréting (máluð), tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Gólfefni í alrými, forstofu, herbergjum og eldhúsi er harðparket sem flæðir inn í öll rými.

Í sameign er sér geymsla, hjóla- og vagnageymsla og inngangur/anddyri.

Í geymslu er málað gólf, veggfastar hillur (fylgja).

PVC gluggar eru í öllum rýmum utan stofu, svalargluggar, þar eru timburgluggar.

Nýjar hurðar frá sameign inn í íbúðir í öllum stigaganginum.

Inni í íbúðinni, þá er búið að endurnýja gólfefni, hurðar og eldhúsinnréttingu.

Húsið Nesbakki 13 - 17 er þriggja hæða hús með þremur stigahúsum.

Húsið er steinsteypt byggt árið 1979, gaflar hússins eru klæddir. Sex íbúðir eru í hverjum stigagangi, tvær íbúðir eru á hverri hæð.

Þak er risþak klætt járni, þak eignarinnar hefur verið endurnýjað ásamt þakrennum og þakköntum.

Lóð er gróin, sameiginleg, bílastæðalóð framan við húsið er mallbikuð.

Lóðin er 2.875,0 m² leigulóð, lóðarleigusamningur til 50 ára frá 26. júlí 1978, skjal nr. 428-N-0H1009/1978.

Lega og takmörk lóðar samkvæmt lóðarleigusamning, leigjendur norðan við lóðina megi ganga um merkt svæði og nýta til sinna nota,

sjá nánar lóðaleigusamning.

Tvö húsfélög eru starfandi í heildarhúsinu Húsfélagið Nesbakki 13-17, sjá nánar í söluyfirliti.

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:

Fasteignanúmer 216-9540 . Nesbakki 17, Fjarðabyggð.

Stærð: Íbúð 92.4 m².

Brunabótamat: 45.900.000 kr.

Fasteignamat: 31.400.000 kr.

Byggingarár: 1980.

Byggingarefni: Steypa.

Eignarhald:

03 0 - Séreign. Rými 03 X Sameign allra 10.6 Brúttó m².

03 2 - Séreign. Rými 03.0105 Geymsla 7 Brúttó m². 03.0301 Íbúð á hæð 85.4 Brúttó m²​​​​​​.