Barmahlíð 15

105 Reykjavík

Ásett verð: 85.900.000 kr.

Barmahlíð 15
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
100,5 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1949
Fermetraverð
854.726 kr.

Lýsing

Miklaborg og Böddi kynna: Barmahlíð 15 – falleg og vel skipulögð 4ra herbergja fjölskylduíbúð með sérinngangi í góðu Sigvaldahúsi á frábærum stað í Hlíðunum.

Eignin er skráð 100,5 fm og þar af er 9,2 fm sérgeymsla innan íbúðar. Íbúðin er á neðstu hæð, með þremur svefnherbergjum, björtu alrými, rúmgóðri stofu og endurnýjuðu eldhúsi og baðherbergi.

Nánari upplýsingar: Böddi LGF S: 8216300 eða boddi@miklaborg.is

Nánari lýsing:

Forstofa og stigi: Með slitsterku og vatnsþolnu teppi á gólfi.

Eldhús: Falleg hvít innrétting með góðu vinnu- og skápaplássi. Innbyggð uppþvottavél, ofn, keramikhelluborð og veggfastur háfur. Stæði er fyrir ísskáp.

Stofa og alrými: Eldhús og stofa mynda bjart og opið alrými með parketi á gólfi. Stofan er rúmgóð og stórir gluggar veita einstaklega góða birtu.

Svefnherbergi: Þrjú góð svefnherbergi, öll með parketi á gólfi og fataskápum.

Baðherbergi: Snyrtilegt baðherbergi með nýlegum flísum á gólfi, hvítri innréttingu, upphengdu salerni, sturtuklefa og handklæðaofni.

Geymsla og þvottaaðstaða: Rúmgóð 9,2 fm sérgeymsla er innan íbúðar með opnanlegum glugga. Aðstaða fyrir þvottavél og aukið geymslurými er undir stiga.

Sameiginleg geymsla er í kjallara með hitagrind og rafmagnstöflu. Hita- og rafmagnsreikningar eru aðskildir fyrir íbúðir hússins.

Helstu kostir:

Sérinngangur og dýrahald því mögulegt.

Sérsniðnar rúllugardínur frá Sólargluggatjöldum fylgja í flestum rýmum.

Góður sólpallur fyrir framan húsið er í sameign.

Góð hljóðvist milli hæða.

Snyrtileg og vel viðhaldin eign í góðu húsi.

Þrjú svefnherbergi og rúmgóð geymsla innan íbúðar.

Framkvæmdir við húsið 2016–2022:

Brunnur og skólplögn frá brunni út í götu endurnýjuð 2016.

Húsið drenað, múrviðgert og málað 2017.

Skorsteinn fjarlægður, negling þakjárns yfirfarin og þak málað 2022.

Gluggar málaðir 2022.

Plaströr liggja frá húsinu út í brunn, en ekki liggur fyrir hvenær frárennslislagnir voru endurnýjaðar.

Endurbætur innan íbúðar 2015–2023:

Eldhús, rofar og innstungur endurnýjuð 2015.

Fataskápar endurnýjaðir 2017 og 2020.

Gólf flotuð og nýtt harðparket lagt 2019.

Hurðargöt stækkuð og nýjar innihurðir settar 2019.

Forstofa og stigi endurnýjuð 2020.

Nýtt gler sett í stofuglugga 2023.

Baðherbergisgólf, sturtuklefi og handklæðaofn endurnýjuð 2023.

Virkilega falleg og vel skipulögð fjölskyldueign á eftirsóttum stað í Hlíðunum. Stutt er í leik- og grunnskóla, menntaskóla og alla helstu þjónustu. Öskjuhlíð, Perlan og Nauthólsvík eru í næsta nágrenni og miðborg Reykjavíkur í þægilegu göngufæri.

Nánari upplýsingar: Böddi LGF S: 8216300 eða boddi@miklaborg.is