BLÁSKÓGAR 6 - 6B og 6C
810 Hveragerði
Ásett verð: 160.000.000 kr.

- Tegund
- Einbýlishús
- Stærð
- 240,599999237061 m²
- Herbergi
- 8
- Svefnherbergi
- 5
- Baðherbergi
- 2
- Byggingarár
- 1945
- Fermetraverð
- 665.004 kr.
Lýsing
Valborg fasteignasala kynnir í einkasölu Seyðtún (Bláskóga 6) auk lóðanna Bláskógar 6B og 6C, 810 Hveragerði.
Sum hús eru byggð til að búa í, önnur verða hluti af sögu bæjarins. Bláskógar 6 tilheyrir hvoru tveggja. Húsið var hannað og reist árið 1945 af listmálaranum Kristni Péturssyni og stendur enn í dag á fallegri, gróinni lóð þar sem kyrrð, saga og náttúrufegurð fara saman. Hér sameinast hlýlegt heimili, glæsileg útiaðstaða og einstakur karakter sem verður ekki endurskapaður. Svo má lesa neðar texta úr endurminningum Kristins en niðurlag textans segir: " Þessi stutta upptalning þess, sem hér fyrir augum ber, út um glugga og af hlaðvarpa í Seyðtúni, ætti að gefa smá hugmynd um, hvað ríkdómur náttúrunnar er hér á borð borinn fyrir þá, sem vilja sjá og geta séð dásemdir hinnar ósnortnu náttúru. Slíkt umhverfi ætti að orka á og móta aðra manngerð en þá, sem lifir og hrærist í öngstrætum stórborganna."
Um er að ræða Bláskóga 6 sem er tvílyft einbýlishús, útleigueiningu, gróðurhús, garðskúr, skráð samtals 240,6 m² hjá Þjóðskrá Íslands en lóð eignarinnar er skráð 1.240,8 m².
Skipting eignanna er sem hér segir:
Eining 01-0101 er tvílyft einbýlishús, skráð 144,8 m². Eignin er: Á jarðhæðinni er forstofa, alrými sem í er eldhús - stofa - borðstofa, baðherbergi, þvottahús/geymsla. Á efri hæð eru þrjú rúmgóð svefnherbergi. Byggt 1945.
Jarðhæðin er að mestu leiti flísalögð, fyrir utan þvottahús. Hátt er til lofts í alrými (eldhús/stofa/borðstofa) og þakluggar eru yfir því rými. Arinn er í stofu. Rúmgott baðherbergi og sér rými sem í er sturta. Þvottahús er mjög rúmgott og nýtist einnig sem góð geymsla. Stigi upp á efri hæð er teppalagður, sem og svefnherbergisgangur efri hæðar. Opið þaðan niður í alrými hússins. Þrjú svefnherbergi á efri hæð, öll með parketi á gólfum.
Eining 02-0101 er íbúð, skráð 63,0 m². Var áður bílskúr, er í dag þriggja herbergja íbúð auk geymslu. Eignin er: Íbúðin er forstofa, tvö svefnherbergi, alrými sem í er eldhú - stofa - borðstofa, baðherbergi, risloft. Auk þess er geymsla aðgengileg um annan inngang, ótengdan íbúðinni. Byggð 1990.
Eining 03-0101 er baðhús, skráð 19,3 m². Var nýtt sem sér útleigueining og gæti orðið það aftur. Þar er fullbúið eldhús og baðherbergi. Byggt 2017.
Eining 04-0101 er gróðurhús, skráð 13,5 m². Vandað upphitað Serralux gróðurhús frá Filclair í Belgíum, með ræktunarhillum en einnig er hægt að rækta í gólfi. Umboðsaðili er Lágafell. Byggt 2004.
Auk þess eru tvö óskráð heilsárshús á lóðinni, samtengd með yfirbyggðu þaki. Með þeim er fermetratala eignanna orðin um 270 m².
Stór sólpallur með heitum potti er haganlega fyrirkomið á skjólsælum stað.
Bílaplan er æði stórt, snjóbræðsla til staðar.
Lóðin er skráð 1.240.4 m² og er á henni mikill gróður. Sjá uppl um heildarlóðastærðir hér fyrir neðan.
Fyrir nokkrum árum var lóðin minnkuð úr 2.338,9 m² og stofnaðar út úr henni tvær byggingalóðir, sem fylgja með. hægt er að byggja á þeim, selja þær út úr pakkanum eða nýta þær til að hafa stærri lóð til suðurs. Skráning þeirra er sem hér segir:
Bláskógar 6B er skráð 327,9 m² byggingarlóð en gert er ráð fyrir einnar hæðar einbýlishúsi á lóðinni. Nýtingarhlutfall er að 0,3.
Bláskógar 6C er skráð 806,6 m² byggingarlóð en gert er ráð fyrir einnar til tveggja hæða einbýlishúsi á lóðinni. Nýtingarhlutfall er að 0,3.
Heildarstæð lóðanna er því 2.338,9 m² .
Bláskógar 6 – einstök fjölskyldueign með sögu, sál og fallegri lóð
Það er sjaldgæft að eign bjóði upp á jafnmikla sögu og persónuleika og Bláskógar 6 gera. Húsið var hannað og reist árið 1945 af listmálaranum Kristni Péturssyni sem valdi Hveragerði sem heimili sitt og vinnustað. Þar skapaði hann verk sín í sérstakri vinnustofu sem var hluti af húsinu og eignin hefur síðan verið hluti af þeirri einstöku sögu sem mótaði Hveragerði sem listamanna- og garðyrkjubæ.
Á rúmgóðri og gróinni lóð ríkir einstök kyrrð og skjól. Þar sameinast fallegur garður, gróðurhús og góðar aukabyggingar í umhverfi sem býður upp á fjölbreytta möguleika til útleigu, útivistar, ræktunar og notalegrar samveru.
Húsið hefur tekið breytingum í takt við tímann en heldur jafnframt í þann karakter og hlýju sem einkenna vandaðar eignir frá fyrstu uppbyggingarárum Hveragerðis. Hér gefst einstakt tækifæri til að eignast fallegt heimili þar sem saga, náttúra og nútímaleg lífsgæði mætast á einstaklega eftirsóttum stað.
Bláskógar 6 er ekki aðeins hús – heldur heimili með sögu sem heldur áfram með nýjum eigendum. Sjón er sögu ríkari.
Eignin virðist hafa fengið gott viðhald í gegnum árin en um síðustu aldamót voru bæði íbúðarhúsin mikið endurnýjuð. Viðhalda á gluggum (gler og timbur eftir atvikum), rafmagns- og vatnslagnir endurnýjaðar að hluta, gólfefni, ytra byrði húsa sem og þökum.
Í Þjóðskjalasafni Íslands er varðveitt handrit af endurminningum Kristins Péturssonar (1896-1981), myndalistamanni og kennara, sem hann ritaði eftir dagbókum og minnisblöðum á árunum 1972-1979. Honum entist þó ekki ævin til að ljúka ritun endurminninganna og kom hann þeim sjálfur til varðveislu í Þjóðskjalasafni skömmu fyrir andlát sitt. Í þessum skjölum er meðal annars að finna frásögnina „ Útsýnishringurinn “ þar sem hann lýsir því sem fyrir auga ber frá húsi hans Seyðtúni, Bláskógum 6.
Heimild: ÞÍ. Kristinn Pétursson (1896-1981) myndlistamaður og kennari 0/263. A/1, örk 1.
Útsýnishringurinn
Það, sem heillaði mig hvað mest fyrst er ég kom í Hveragerði, var lega þorpsins, fjöllin að norðan við það en opið á móti suðri út að haffletinum. Þar sem ég ólst upp voru há fjöll bæði norðan og sunnan við, svo að sól sást ekki um sólhvörfin á annan mánuð. En eitt er sama hér og þar. Ég var sunnan undir fjalli og sjór sunnan við, mjór fjörður.
Úr vinnustofuglugganum blasir við Reykjafjöll og samnefndur dalur fjær, en hverasvæðið nær og húsin við það. Um sólstöður roðar miðnætursólin skýin yfir dalbotninum um lágnættið. Yndislegasta stund hins sólbjarta sólarhrings. En upp yfir hábungu Reykjafjalls gægjist bæði sól og máni, þegar þau eru í hágöngum sínum
Stærri gluggi Hillunnar er…