Austurtröð 4

805 Selfoss

Ásett verð: 39.800.000 kr.

Austurtröð 4
Tegund
Sumarhús
Stærð
70,1 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1989
Fermetraverð
567.760 kr.

Lýsing

ÁRBORGIR FASTEIGNASALA kynnir í einkasölu:

Austurtröð 4 Grímsness- og Grafningshrepp.

Snyrtilegt sumahús á fallegum stað rétt við Úlfljótsvatn. Húsið er timburhús klætt að utan með máluðu timbri og er litað járn á þaki. Heildarstærð hússins er skráð 70,1m2 en búið er að byggja sólskála við húsið en stærð hans er ekki skráð í heildarstærð eignarinnar.

Að innan skiptist húsið í forstofu, baðherbergi, 2 svefnherbergi, stofu og eldhús auk sólskálans. Rúmgott svefnloft er yfir hluta hússins.

Nánari lýsing.

Parket er á gólfi í forstofu og báðum svefnherbergjum.

Baðherbergi er með dúk á gólfi en þar er sturtuklefi og lítil innrétting.

Stofa og eldhús eru í opnu rými, parket er á gólfi og í eldhúsi er snyrtileg innrétting. Stigi upp á svefnloft er í eldhúsi.

Svefnloftið er parketlagt og er opnanlegur gluggi á gaflinum.

Sólskálinn er flísalagur og þar er góð rennihur út á sólpall.

Sólpallur með skjólveggjum og heitum potti er við húsið og á pallinum er einnig geymsluhús.

Lóðin er leigulóð, öll gróin og snyrtileg.

Í heildina er um að ræða snyrtilegt og vel við haldið sumarhús á góðum stað.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga

arborgir@arborgir.is