Gnoðarvogur 48

104 Reykjavík

Ásett verð: 119.900.000 kr.

Gnoðarvogur 48
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
161,800000762939 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1960
Fermetraverð
741.038 kr.

Lýsing

CROISETTE - KNIGHT FRANK kynna í einkasölu glæsilega 161 fm sérhæð á miðhæð við Gnoðarvog 48. Þetta er afskaplega falleg eign sem er búið að endurnýja að miklum hluta og sérhanna mikið sem í henni er. Hæðinni fylgir að auki 32 fm bílskúr. Ný gólfefni frá Gólfefnabúðinni með áföstu hljóð undirlagi eru á gólfum, búið er að skipta um glugga í austurgafli, allar hurðir og skápar sprautulakkaðir með lakki frá Benjamin Moore, blöndunartæki Húsasmiðjunni og Byko, gróinn garður og suðursvalir. Íbúðin er í dag með tveimur svefnherbergjum en auðvelt er að bæta því þriðja við þar sem hún var áður skipulögð með þremur svefnherbergjum. Mikið og gott skápapláss er i íbúðinni. Um er að ræða afar fallega og vandaða eign sem vert er er að skoða. Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson lfs í S: 663-6700 eða kalli@croisette.is eða Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða elin@croisette.is.

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT STRAX

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA EIGNINA Í 3-D.

Nánari lýsing:

Stofa/borðstofa: Stofan var stækkuð með að opna eitt herbergi en lítið mál er að breyta því til baka. Opin og björt stofa með suðursvölum. Vinylparket á gólfi.

Eldhús: Ný innrétting byggð á Ikea grunni, bæsaðir Eikar frontar frá Haf Studio - Rammi, 90 cm Smeg gaseldavél, búr inn af eldhúsi með góðri innréttingu. Microsement á veggjum, vinylparket á gólfi. Hiti í gólfi.

Hjónaherbergi: Stórt og bjart herbergi með stórum hvítum skápum. Útgengt út á stórar suðursvalir úr hjónaherbergi.

Barnaherbergi: Mjög rúmgott og bjart herbergi. Góðir skápar. Vinylparket á gólfi.

Baðherbergi: Glæsilegt baðherbergi með microsement á veggjum og gólfi, upphengdu salerni og stóri opinni sturtu. Hiti í gólfi.

Gestabaðherbergi: Nett innrétting með vaski. Flísar á gólfi.

Bílskúr: Bílskúr með heitu og köldu vatni, vask og vaskaborði, salerni og góðum hillum. Útgengt útí garð. Nýr ika þakdúkur á bílskúr. Gert 2022

Að auki er gott þvottahús og þurrk herbergi í kjallara ásamt geymslu með góðum hillum.

Nánari upplýsingar veita:

Karl Lúðvíksson Sölustjóri - í síma 663 6700, tölvupóstur kalli@croisette.is

Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða elin@croisette.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun .

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak .

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.

- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.