Melasíða 10 íbúð 201
603 Akureyri
Ásett verð: 52.500.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 83,8 m²
- Herbergi
- 3
- Svefnherbergi
- 2
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1980
- Fermetraverð
- 626.492 kr.
Lýsing
Melasíða 10 íbúð 201 - Björt og rúmgóð 3ja herbergja íbúð á annarri hæð í fjölbýlishúsi í Síðuhverfi - Stærð 83,8 m².
Mjög góð staðsetning - stutt í leik og grunnskóla sem og líkamsrækt og verslunarkjarna.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður H. Þrastarson, siggithrastar@kaupa.is, 888-6661.
Eignin skiptist með eftirfarandi hætti:
Forstofa, eldhús, stofa, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsla í sameign.
Forstofa er með opnu fatahengi og harðparketti á gólfi.
Eldhús er með ljósri innréttingu með flísum á milli skápa. Stæði er fyrir eldavél og ísskáp. Góður borðkrókur við enda innréttingar. Harðparket á gólfi. Útgengt er á steyptar svalir frá við enda borðkróks.
Stofa er í hálfopnu rými með eldhúsi, björt og rúmgóð. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með fataskápum og harðparketi á gólfum.
Baðherbergi er með ljósri innréttingu, baðkari með sturtutækjum og wc. Flísar á gólfi og veggjum.
Þvottahús er innan íbúðar, er það inn af eldhúsi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.
Geymsla er í sameign.
Annað :
- Verið er að múrviðgera húsið að utan - greiðist af seljanda.
- Nýlegt harðparket á gólfum.
- Hjóla og vagnageymsla í sameign.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.