Safamýri 46

108 Reykjavík

Ásett verð: 73.900.000 kr.

Safamýri 46
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
128,2 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1964
Fermetraverð
576.443 kr.

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Björt og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á 4. og efstu hæð við Safamýri 46, Reykjavík ásamt bílskúr. Birt stærð eignar samkvæmt fasteignaskrá: Íbúð 107,7 fm og bílskúr 20,5, samtals 128,2 fm.

Íbúðin telur, rúmgóða stofu, eldhús með góðum borðkrók, 3 svefnherbergi, baðherbergil auk sérgeymslu í kjallara

Nánari lýsing:

Komið er inn parketlagt anddyri eða skála.

Rúmgóð stofa/borðstofa með stórum gluggum. Dúkalögð. Úr stofu útgengt út á góðar svalir.

Eldhúsið er rúmgott með hvítri eldri innréttingu. Bakarofn og helluborð. Flísar á milli efri og neðri skápa. Dúkalagt.

Svefnherbergi íbúðar eru þrjú.

Hjónaherbergið er mjög rúmgott með útgengi á svalir. Eldri fataskápar. Dúkalagt.

Tvö barnaherbergi, bæði parketlögð. Annað þeirra rúmgott.

Baðherbergið var endurnýjað fyrir nokkrum árum. Flísar á gólfi. Vegghengt salerni. Sturtuklefi og hvít innrétting undir handlaug og speglaskápur fyrir ofan innréttingu.

Íbúðinni fylgir 20.5 fm bílskúr í lengju. Bílskúrshurð hefur verið endurnýjuð.

Hér er um að ræða vel skipulagða eign í fjölbýlishúsi miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu í vinsælu hverfi þar sem öll helsta þjónusta er í næsta nágrenni. Skólar á öllum stigum eru nærri og stutt í íþróttastarf.

Viðhald að utan og í sameign samkvæmt upplýsingum frá húsfélagi og eiganda:

2019 – Viðgerðir á austurhlið. Skipt um alla glugga, múrviðgerðir og blettað. Skipt um svalahurðir.

2020 – Frárennsli lagað og dren yfirfarið. Skipt um lagnir að hluta en aðrar fóðraðar. Brunnar endurnýjaðir.

2022 – Vesturhlið viðgerð. Skipt um alla glugga, múrviðgerðir og blettamálun eftir þörfum.

2022 – Settar upp hleðslustöðvar frá Ísorku í sameign á bílaplani. Gengið frá grunnkerfi fyrir hraðhleðslustöðvar í bílskúrum.

Nánari upplýsingar veitir:

Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali í síma 867-0968 eða unnar@eignamidlun.is

***

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook