Laugalækur 15

105 Reykjavík

Ásett verð: 154.900.000 kr.

Laugalækur 15
Tegund
Raðhús
Stærð
174,4 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Byggingarár
1960
Fermetraverð
888.188 kr.

Lýsing

Katrín Eliza Bernhöft löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX kynnir í einkasölu: Laugalækur 15, 105 Reykjavík

Laugalækur 15 er hluti af einstaklega fallegri og litríkri raðhúsalengju á besta stað í Laugardalnum. Eignin er á þremur hæðum með góðu og björtu alrými, eldhúsi, fjórum svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, þvottahúsi og geymslu innan eignar og virkilega skemmtilegum útipalli. Raðhúsið er staðsett í rótgrónu hverfi og stutt í alla helstu þjónustu. Raðhúsalengjan hlaut fegrunarviðurkenningu Reykjavíkurborgar árið 2025.

Góð staðsetning í Laugardalnum . Stutt í alls konar útivist, íþróttamannvirki, sundlaug, grunnskóla, leikskóla, verslanir og ótal fallegar gönguleiðir í Laugardalnum. Kaffihús, bakarí og ísbúð eru í Laugalæk. Íþróttasvæði Þróttar, fimleikar hjá Ármanni og Frjálsar hjá ÍR eru í göngufæri. Laugarnesskóli og Laugalækjarskóli eru í göngufæri.

Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 174,4 fm. Eignin hefur fastanúmerið 201-6594 og selst ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðaréttindum.

SMELLTU HÉR og skoðaðu þessa eign í 3-D (Ekki er þörf á sérstöku forriti)

Nánari lýsing:

Gengið er upp nokkrar útitröppur og komið inn í flísalagt andyri.

Á miðhæð :

Stofan er mjög björt og rúmgóð og þaðan er útgengt á stóran viðarsólpall sem er í garðinum.

Eldhúsið hefur verið endurnýjað að hluta með fallegum innréttingum. Eldhúsið er með bæði góðu skápa- og vinnuplássi. Góð aðstaða fyrir rúmgóðan borðkrók.

Á milli hæða eru svalir sem snúa út að bílaplani .

Á efri hæð:

Hjónaherbergi með parketi á gólfi.

Herbergi 2 með parketi á gólfi.

Herbergi 3 með parketi á gólfi.

Baðherbergið er flísalagt á veggjum og gólfi. Sturta, salerni, vaskur og hvítar hillur.

Á neðri hæð :

Herbergi 4 með parketi á gólfi.

Baðherbergið er flísalagt með salerni og vaski.

Rúmgott þvottahús og sér geymsla.

Hjólageymsla er í sameign.

Íbúðin er virkilega björt, falleg og á frábærum stað. Algjörlega þess virði að skoða.

Samkvæmt eigendum eignarinnar hefur verið farið í ýmsar framkvæmdir á eigninni á liðunum áðum. Nánari upplýsingar hjá fasteignasala.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Katrín Eliza Bernhöft löggiltur fasteignasali, s.699 6617, katrin@remax.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. REMAX bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af löggiltum fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi - Einstaklingar 0,8% af heildarfasteignamati - Lögaðilar 1,6% - fyrstu kaup einstaklinga 0,4%

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.

Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk

Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunnar.