EYJÓLFSSTAÐASKÓGUR 6

701 Egilsstaðir

Ásett verð: 49.900.000 kr.

EYJÓLFSSTAÐASKÓGUR 6
Tegund
Sumarhús
Stærð
56,4 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
1989
Fermetraverð
884.752 kr.

Lýsing

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu EYJÓLFSSTAÐASKÓGUR 6, 701 Egilsstaðir.

Sumarhús/ „ heilsárshús" á vinsælum stað í Eyjólfsstaðaskógi, gróin lóð, eign sem vert er að skoða. Smellið hér fyrir staðsetningu.

Húsið er timburhús á tveimur hæðum, byggt árið 1989. Húsið er skráð sumarbústaður 56.4 m² að stærð samkvæmt fasteignayfirliti HMS.

Skipulag: Forstofa, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö herbergi og baðherbergi, svefnloft með tveimur herbergjum og geymsla undir súð.

Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |

Nánari lýsing:

Forstofa , flísar á gólfi, fatahengi, þaðan er innangengt í önnur rými.

Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, frá alrými er útgengt út á timburverönd til suðurs með skjólveggjum.

Eldhús , innrétting með neðri og efri skápum, eldavél, gluggi. Ekki er gert ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu.

Ísskápur er staðsettur undir stiga og þar við hliðinna á er lítil geymsla.

Tvö herbergi , annað þeirra er með sérsmíðaðri hákoju, pláss fyrir tvíbreitt rúm í hinu herberginu

Baðherbergi , dúkalagt í hólf og gólf, sérsmíðaður sturtubotn úr ryðfríu stáli, salerni, vaskinnrétting og speglaskápur, panilklætt loft

Gólfefni : Viðar gólfborð á gólfum á jarðhæð, nema í forstofu þar eru flísar, dúkur er á baðherbergi.

Þéttull er í öllum milliveggjum og innihurðum hússins, sem stuðlar að bættri hljóðeinangrun milli rýma.

Timburstigi liggur upp á loft, þar eru tvö aflokuð herbergi í hvorum stafni. Pláss er fyrir 2-3 rúm í hvoru herbergi.

Útgengt er út á svalir til suðurs. Timburparketfjalir/ „verkamannaparket" á gólfi.

Geymsla undir súð, þar er hitakútur hússins og hillur.

Húsið er kynnt með rafmagnsofnum.

Eyjólfsstaðarskógur 6 . Húsið er klætt með timburborðum, timburgluggar og hurðar, járn á þaki.

Timburverönd liggur meðfram þremur hliðum hússins. Möl er í bílaplani, gróður hefur umlukið bílaplanið.

Geymsluskúr u.þ.b. 7-9 m² að stærð er á lóðinni (óskráður, kaldur), hvorki vatn né rafmagn er í skúrnum. Rotþró er við húsið.

Lóðin er skógi vaxin, villtur gróður og tré í bland við trjá- og runnagróður sem veitir gott skjól. Gott aðgengi er að eigninni yfir vetrartímann.

Lóðin stendur í skipulögðu sumarbústaðalandi, stærð lóðar er 3.650,0 m², leigulóð í eigu Skógræktarfélags Austurlands.

Skráning eignarinnar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:

Fasteignanúmer 217-5002. Eyjólfsstaðarskógur 6, Múlaþing.

Stærð: Sumarbústaður 56.4 m².

Brunabótamat: 23.250.000 kr.

Fasteignamat: 27.250.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2027: 29.600.000 kr.

Byggingarár: 1989.

Byggingarefni: Timbur

Eignarhald: 01.2 - Séreign

01.0101- Séreign. Rými 01.0101 sumarbústaður 56,4 Brúttó m².

Landeignanúmer: L157454. Notkun Sumbarbústaðaland. Stærð 3650,0 m².