Fossvegur 10

800 Selfoss

Ásett verð: 56.900.000 kr.

Fossvegur 10
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
102,7 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2004
Fermetraverð
554.041 kr.

Lýsing

Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali ásamt HÚS fasteignasölu kynna í einkasölu. Bjarta og rúmgóða útsýnisíbúð á efstu hæð í lyftublokk við Fossveg 10, á Selfossi. Íbúðin er 96,2 fm þar við bætist geymsla á jarðhæð 6,5 fm, samtals 102,7 fm. Húsið er byggt árið 2004. Sérinngangur í íbúð af svölum. Virkilega fallegt útsýni.

********** Bókið einkaskoðun********** Frábært útsýni ******************

Nánari lýsing:

Eignin telur forstofu með flísum á gólfi og fataskáp, gangur með nýju parketi á gólfi, tvö svefnherbergi með nýju parketi á gólfi, annað þeirra með stórum fataskáp og hitt með minni. Rúmgott baðherbergi með flísum á gólfi, innréttingu og sturtuklefa. Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu, samliggjandi stofa og eldhús með nýju parketi á gólfi og góðri spónlagðri innréttingu. Góðar 7,1 fm svalir eru á íbúðinni sem snúa mót suðvestri. Á jarðhæð er 6,5 fm geymsla. Húsið er steypueiningahús einangrað að utan með viðhaldslítilli álklæðningu.

Gott stigahús með lyftu er í húsinu, sérinngangur í íbúð af svölum.

Falleg íbúð, vel umgengin á góðum stað með frábæru útsýni.

Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891 , hafsteinn@husfasteign.is

"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð