Hamrabrekkur 10
271 Mosfellsbær

- Tegund
- Sumarhús
- Stærð
- 129,3 m²
- Herbergi
- 4
- Svefnherbergi
- 3
- Baðherbergi
- 2
- Byggingarár
- 2026
Lýsing
** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Nýtt og glæsilegt 129,3 m2 sumarhús/heilsárshús á tveimur hæðum á 4290,0 m2 eignarlóð, í útjaðri byggðar stutt frá Hafravatni, 271 Mosfellsbæ. Frábær staðsetning og glæsilegt útsýni, ca. 10 mín akstur frá höfuðborgarsvæðinu. Hitaveita er í húsinu.
Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, forstofu, eldhús, stofu og borðstofu. Stórir gluggar og mikil lofthæð sem gerir eignina bjarta og skemmtilega. Clipso hljóðdúkur í lofti sem gefur góða hljóðvist. Fallegar innréttingar og gólfefni. Sjónsteypa á hluta útveggja neðri hæðar setur skemmtilegan svip á rýmin. Loftskiptikerfi er í húsinu. Plejd ljósabúnaður frá Ískraft, auðvelt að endurforrita ljósin eftir þörfum hvers og eins, án aðstoðar iðnaðarmanns.
Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með timbri.
Stór verönd með snjóbræðslu, sem væri möguleiki á að setja svalalokun á. Stór heitur pottur með nuddstútum. Stórar svalir með snjóbræðslu og stórar þaksvalir með 360° glæsilegu útsýni.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent
Nánari lýsing:
Efri hæð:
Forstofa er með fatahengi og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 1 er með parketi á gólfi og fataskápum. Úr herberginu er gengið út á svalir.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi og fataskápum. Úr herberginu er gengið út á svalir.
Svefnherbergi nr. 3 er með parketi á gólfi. Úr herberginu er gengið út á svalir.
Baðherbergi nr. 1 er flísalagt með innréttingu, vegghengdu salerni og sturtu. Innbyggð tæki eru á baðherbergi. Úr baðherbergi er gengið út á svalir.
Neðri hæð:
Baðherbergi nr. 2 er flísalagt með sturtu, borðplötu og skolvaski. Innbyggð tæki eru á baðherbergi. Tengi fyrir þvottavél er á baðherbergi.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í björtu opnu rými með parketi á gólfi. Um 6,5 metra lofthæð er yfir stofunni. Í eldhúsi er falleg innrétting með miklu borðplássi. Steinn frá mood interiors er á borðum. Í innréttingu er innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, blástursofn og helluborð. Úr rýminu er gengið út á flísalagða verönd.
Möguleiki er á að kaupa eignina með húsgögnum.