Andarhvarf 4

203 Kópavogur

Ásett verð: 169.000.000 kr.

Andarhvarf 4
Tegund
Parhús
Stærð
201,899999237061 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Byggingarár
2005
Fermetraverð
837.048 kr.

Lýsing

Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir: Vel skipulagt og fallegt parhús á tveim hæðum með bílskúr á skemmtilegum útsýnisstað við Andarhvarf 4 í Kópavogi.

Glæsilegt útsýni og gott bílaplan er framan við hús, suður-svalir og afgirt lóð.

Eignin skiptist í: Forstofu, hol/gang, stofu, borðstofu, eldhús, 4 svefnherbergi, gesta og aðalbaðherbergi, þvottaherbergi, sjónvarpsherbergi, geymsla og svo er bílskúr á efri hæð.

Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands: Íbúð er 201,9 fm þar af bílskúr 28,7 fm.

FASTEIGNAMAT ÁRSINS 2027 ER KR. 158.450.000-

Hér getur þú gengið í gegnum eignina í 3D: Ýtið hér

// Mjög vel staðsett eign og stutt í alla þjónustu.

// Glæsilegt útsýni.

// 4 Svefnherbergi.

// Stór bílskúr

// Glæsilegur garður með stórum palli og heitum potti.

// Stæði fyrir 5 bíla fyrir utan.

// Útiskúr.

Nánari lýsing á eign:

Efri hæð:

Hiti í gólfum á efri hæð.

Forstofa: Flísar á gólfi og með fataskápum, inngengt í innbyggðan bílskúr úr forstofu.

Gestabaðherbergi: Flísar á gólfi og hluta af veggjum. Vaskur og spegill.

Barnaherbergi 1: Rúmgott með flísum á gólfi og fataskáp.

Eldhús: Flísar á gólfi, glæsileg innrétting með góðu skápa og borð plássi ásamt eyju, eldhúsinnrétting mjög vönduð með tækjaskápum og steinn á borði. Gert er ráð fyrir 2 földum ísskáp.

Stofa/borðstofa: Flísar á gólfi, mjög rúmgóðar og bjartar með útgengi út á stórar svalir með fallegu útsýni.

Bílskúrinn: Er rúmgóður með góðri lofthæð, flísar eru á gólfi og hurðaopnari.

Neðri hæð:

Ofnar eru á neðri hæð.

Gengið er niður fallegan parketlagðan stiga niður á neðri hæð.

Sjónvarpsherbergi : Parket á gólfi og útgengi út á fallega verönd.

Hjónaherbergi: Parket á gólfi og með stórum fataskáp.

Barnaherbergi 2: Parket á gólfi og fataskáp.

Barnaherbergi 3: Parket á gólfi og fataskáp.

Baðherbergið: Hiti í gólfi, flísalagt í hólf og gólf, er bæði með sturtu og hornbaðkar, vegghengt salerni, skápur, innrétting undir vask og stórum spegil.

Þvottaherbergi: Flísar á gólfi, innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og fín vinnuaðstaða.

Geymsla: Er inn af sjónvarpsherbergi.

Góð aðkoma er að hellulögðu bílaplani með hitaílögnum og einnig hellulagðri stétt. Bílastæðið rúmar 5 bíla.

Garðurinn er gróinn með veröndum, skjólveggjum og gróðri.

Eftirsótt staðsetning í Hvörfunum Kópavogi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, ýmsa þjónustu og stutt útí fallega náttúru.

Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / petur@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.