Fannborgartangi 14
846 Flúðir
Ásett verð: 82.900.000 kr.

- Tegund
- Parhús
- Stærð
- 164,499996185303 m²
- Herbergi
- 4
- Svefnherbergi
- 3
- Baðherbergi
- 2
- Byggingarár
- 2025
- Fermetraverð
- 503.951 kr.
Lýsing
Vel skipulagt 164,5 m² parhús með þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum og rúmgóðum bílskúr á Flúðum. Eignin er boðin til sölu fullbúin á 83,9 m.kr., en einnig er möguleiki á að kaupa hana í núverandi ástandi á 59,9 m.kr.
Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi samkvæmt skipulagi.
Rúmgóður 38,3 m² bílskúr.
Vel skipulögð eign með fjölbreyttum möguleikum.
Möguleiki á að kaupa eignina í núverandi ástandi á 59,9 m.kr. og ljúka framkvæmdum á eigin forsendum.
Birt stærð eignar er 164,5 m² samkvæmt HMS.
Nánari upplýsingar veita:
Andrea Ósk Harradóttir Lgf. í S: 785-6698 eða andrea@palssonfasteignasala.is
[link]
[link]
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur
Nánari lýsing eignar
Um er að ræða vel skipulagt parhús sem er boðið til sölu fullbúið á kaupverðinu 83,9 m.kr. Seljendur munu annast fullnaðarfrágang eignarinnar samkvæmt nánara samkomulagi um efnisval, útfærslur og afhendingu. Einnig er möguleiki á að kaupa eignina í núverandi ástandi á 59,9 m.kr. og ljúka framkvæmdum á eigin forsendum.
Ath: Myndir af innra útliti eignarinnar eru unnar með gervigreind og eru eingöngu ætlaðar til að gefa hugmynd um mögulegt útlit fullbúinnar eignar. Þær endurspegla því ekki endilega nákvæma endanlega útkomu, enda getur kaupandi haft áhrif á útfærslu og efnisval. Fyrirliggjandi teikningar sýna fyrirhugað skipulag eignarinnar.
Eignin skiptist samkvæmt skipulagi í forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Fyrirhugað innra skipulag og frágangur fullbúinnar eignar:
Forstofa: Gert er ráð fyrir rúmgóðri forstofu með fataskápum og innangengi í bílskúr.
Eldhús: Samkvæmt fyrirliggjandi lýsingu er gert ráð fyrir hvítri, höldulausri eldhúsinnréttingu frá IKEA með borðplötu frá Fanntófell og LED-lýsingu undir efri skápum. Eldhústæki eru ísskápur, bakarofn, spanhelluborð og uppþvottavél frá IKEA.
Stofa og borðstofa: Bjart og opið alrými þar sem stofa og eldhús tengjast á skemmtilegan hátt. Útgengt er úr stofu á fyrirhugaða verönd.
Baðherbergi I: Gert er ráð fyrir innréttingu með skúffum og handlaug, handklæðaofni og rúmgóðri walk-in sturtu með sturtugleri. Flísalagt gólf og veggir.
Baðherbergi II: Gert er ráð fyrir innréttingu með handlaug og sturtuklefa. Flísar á gólfi og veggir málaðir.
Svefnherbergi: Þrjú svefnherbergi samkvæmt skipulagi, með fyrirhuguðum höldulausum fataskápum.
Þvottahús: Sér þvottahús með innréttingu, vaski og tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Þar er einnig gert ráð fyrir loftræstisamstæðu.
Bílskúr: Rúmgóður 38,3 m² bílskúr með innangengi frá forstofu. Samkvæmt fyrirliggjandi lýsingu er gert ráð fyrir fullmáluðum bílskúr með lökkuðu gólfi og utanáliggjandi rafmagni.
Húsið og lóðin: Húsið er byggt úr timbri og klætt að utan með lituðu báruáli og timburklæðningu. Járn er á þaki og gluggar og hurðir eru úr áli og timbri. Samkvæmt eldri lýsingu er gert ráð fyrir tengingum fyrir jólaljós og lýsingu í þakkanti, þökulagðri lóð og steyptri ruslatunnuskýlu án loka.
Núverandi ástand eignar
Eignin og bílskúr eru í dag skráð á byggingarstigi B2 – fokhelt og matsstigi 5 – tilbúin til innréttingar samkvæmt HMS.
Hljóðdúkur hefur verið settur upp að hluta í eigninni. Sé eignin keypt í núverandi ástandi verður hún ekki afhent með fullfrágengnum hljóðdúk eða loftskiptakerfi.
Staðsetning
Flúðir eru notalegt og fjölskylduvænt samfélag í Hrunamannahreppi, umkringt fallegri náttúru. Á Flúðum er öll helsta þjónusta til staðar, meðal annars leik- og grunnskóli, verslun, sundlaug og íþróttaaðstaða. Staðsetningin hentar því vel þeim sem vilja njóta rólegs og fallegs umhverfis með góða þjónustu í næsta nágrenni.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.