Vorbraut 1 (102)

210 Garðabær

Ásett verð: 89.900.000 kr.

Vorbraut 1 (102)
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
85,4 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2025
Fermetraverð
1.052.693 kr.

Lýsing

Miklaborg kynnir: Vorbraut 1 - Einstaklega fallegt og vandað sjö íbúða fjölbýlishús á spennandi stað í Hnoðraholti í Garðabæ. Húsið er með einu stigahúsi með lyftu, sérgeymslur á jarðhæð og stæði í bílskýli fylgir öllum íbúðum, bílskúr fylgir tveimur íbúðum. Allar íbúðir eru 3ja herbergja með mismunandi skipulagi, tvær íbúðir á jarðhæð, þrjár á 2.hæð og tvær íbúðir á 3.hæð. Íbúðirnar afhendast fullbúnar með sérsmíðuðum innréttingum í viðarliti sem ná til lofts frá Arens en án gólfefna, að undanskildum baðherbergjum og þvottahúsum sem skilast með flísum. Gólfsíðir gluggar og gólfhiti í öllum íbúðum. Svalalokun á fyrstu og annari hæð á suð-vestur horni hússins. Húsið stendur ofarlega á hæðinni og margar íbúðir með stórbrotnu útsýni.

Nánari upplýsingar veitir Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is

Nánari lýsing:

Íbúð 102: Glæsileg 3ja herbergja íbúð á jarðhæð, skráð stærð er samtals 85,4 fermetrar.

Forstofa/anddyri: Með stórum fataskápum til lofts.

Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með fataskápa til lofts á heilum vegg.

Svefnherbergi: Minna herbergi með fataskápum til lofts.

Alrými: Stórt og opið rými með eldhúsi og stórri stofu. Eldhúsið skilast með vönduðum tækjum frá AEG, stór eldhúseyja með helluborði. Gólfsíðir gluggar á tvenna vegu hleypa mikilli birtu í rýmið. Útgengt á 13,8 fm svalir/sérafnotareit sem snýr í suð-vestur.

Baðherbergi/þvottahús: Rúmgott baðherbergi með stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Fallegar flísar á gólfi og veggjum að hluta til. Vegghengd salernisskál, walk-in sturta, handlaug felld ofan í borðplötu.

Sérgeymsla: 2,9 fermetra sérgeymsla á jarðhæð hússins fylgir.

Bílastæði: Sérmerkt stæði í bílageymslu á baklóð hússins fylgir.

Hnoðraholt er spennandi og vaxandi hverfi á góðum stað innan höfuðborgarsvæðisins nálægt helstu stofnbrautum. Stutt í náttúruna, Vífilstaði, Heiðmörk og góða golfvelli, íþróttahúsið Miðgarð, Smáralind og skóla.

Allar nánari upplýsingar veita:

Gabriel Máni Hallsson lögg. fasteignasali í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is

Kjartan Ísak Guðmundsson lögg. fasteignasali í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is

Ólafur Finnbogason lögg. fasteignasali í síma 822-2307 eða olafur@miklaborg.is