Malarhöfði 8

110 Reykjavík

Malarhöfði 8
Tegund
Atvinnuhúsnæði
Stærð
1962,1 m²
Herbergi
8
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Byggingarár
1992

Lýsing

Trausti fasteignasala, Hallgrímur Hólmsteinsson lgfs og Kristján Baldursson hdl og lgfs kynna vel staðsett 1962,1 fm. iðnaðarhúsnæði við Malarhöfða 8 í Reykjavík. Lóðin er skráð sem iðnaðar og athafnalóð og er stærð hennar 3174 fm.

Eignin er staðsett innan Ártúnshöfða-Elliðaárvogs, sem er stærsta þróunarsvæði Reykjavíkur fyrir blandaða byggð íbúða og þjónustu. Rammaskipulag fyrir svæðið var staðfest árið 2017 og í framhaldi verið unnið að deiliskipulagi fyrir minni áfanga á svæðinu. Deiliskipulagssvæðið er austan við ósa Elliðaáa. Malarhöfðinn, sem er hluti af Ártúnshöfða, er eins konar háslétta og einkennist af miklum landhalla frá Bíldshöfða niður til norðurs í átt að framtíðarlegu Borgarlínu. Frekari upplýsingar um stöðu skipulagsvinnunnar á svæðinu má nálgast hér á skipulagsgátt .

Nánari lýsing:

Heildarstærð eignarinnar er 1962,1 fm. en tvær fasteignir standa á lóðinni, annars vegar í 1662,2 fm. iðnaðar- og verslunarhúsnæði, og hins vegar í 300 fm. vörugeymslu. Heildareignin er í dag nýtt undir rekstur Blikksmiðsins hf., en hún verður laus til afhendingar síðar á þessu ári.

Eignin stendur á góðum stað, með góðri aðkomu og getur hentað undir ýmiskonar starfsemi í dag

Frekari upplýsingar hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða á tölvupóstfangið hallgrimur@trausti.is eða hjá Kristjáni Baldurssyni með tölvupósti á kristjan@trausti.is.