Fagrihjalli 46

200 Kópavogur

Ásett verð: 143.700.000 kr.

Fagrihjalli 46
Tegund
Parhús
Stærð
222,099998474121 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Byggingarár
1991
Fermetraverð
647.006 kr.

Lýsing

** HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINA **

Þórdís Björk Davíðsdóttur löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna:

Rúmgott og fjölskylduvænt 222,1 m² rað-/parhús á þremur hæðum með innbyggðum bílskúr, björtum og rúmgóðum vistarverum, arni og góðum útisvæðum. Eignin býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, fjögur svefnherbergi í dag og möguleika á að útbúa fimmta herbergið. Stórir gluggar setja sterkan svip á húsið og veita góða náttúrulega birtu. Tvær góðar verandir eru við húsið og sameiginlegt leiksvæði er á sameiginlegri lóð húsanna Fagrihjalli 42 - 60.

Húsið er á þremur hæðum og skipulag þess hentar sérlega vel fjölskyldufólki. Bílskúr er bæði innan- og utangengur, auk þess sem tvö bílastæði eru í innkeyrslunni.

Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 222,1 fm sem skiptist í íbúðarhúsið 186,5 fm og innangengur bílskúr ásamt geymslu samtals 35,6 fm.

Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið thordis@remax.is

SMELLTU HÉR til að sækja öll gögn um eignina

SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - Með húsgögnum

SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - ÁN húsgagna

HELSTU ATRIÐI EIGNAR

• Fjögur svefnherbergi í dag en möguleiki á fimmta herberginu

• Tvö baðherbergi auk salernis inn af hjónaherbergi

• Rúmgóð stofa og borðstofa í samliggjandi opnu og björtu rými

• Arinn í stofu

• Stórir gluggar, mikil birta og útsýni

• Tvær skjólgóðar verandir - frá eldhúsi og borðstofu

• Bílskúr er bæði innan- og utangengur

• Tvö bílastæði í innkeyrslu

• Sameiginlegt leiksvæði á lóð húsanna Fagrihjalli 42 - 60

-----

Nánari lýsing eignar:

1. HÆÐ - forstofa, miðrými, tvö herbergi, baðherbergi og þvottahús.

Forstofa : Gengið er inn í flísalagða forstofu með fataskápum.

Miðrými : Frá forstofu er komið inn í opið og rúmgott miðrými með parketi á gólfi. Undir stiganum hefur verið útbúið kósý leiksvæði fyrir yngri börn sem nýtir rýmið á skemmtilegan hátt. Svæðið má jafnframt nýta sem geymslu eftir þörfum.

Herbergi I: Gott herbergi með parketi á gólfi.

Herbergi II: Gott herbergi með parketi á gólfi.

Baðherbergi : Baðherbergi með sturtuaðstöðu.

Þvottahús: Mjög rúmgott þvottahús með góðu vinnu- og geymsluplássi.

---

2. HÆÐ - eldhús, baðherbergi, stofa og borðstofa.

Eldhús : Rúmgott eldhús með flísum á gólfi, hvítri innréttingu og graníti borðplötum. Úr eldhúsinu er útgengt á skjólgóða viðarverönd í garðinum, sem myndar góða tengingu milli eldhúss og útisvæðis.

Skipulag eldhússins býður jafnframt upp á þann möguleika að stúka hluta þess af og útbúa þar viðbótarherbergi.

Baðherbergi : Baðherbergi er með baðkari og er flísalagt í hólf og gólf.

Stofa og borðstofa: Björt og rúmgóð stofa og borðstofa eru í samliggjandi rými. Parket er á gólfi en flísar eru í glerskála og í kringum arininn sem skapar hlýlega og notalega stemningu í rýminu. Mikil lofthæð og stórir og miklir gluggar hleypa ríkulegri náttúrulegri birtu inn í rýmið.

Úr borðstofu er útgengt á stóra afgirta verönd sem er ofan á þaki bílskúrsins. Frá veröndinni liggur stigi niður á jarðhæð við hlið bílskúrsins og því er gott aðgengi milli hæða og útisvæða.

---

3. HÆÐ - tvö svefnherbergi auk salernis.

Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með mikilli lofthæð, góðum fataskápum og parketi á gólfi. Inn af hjónaherberginu er lítið gesta salerni. Rennihurð aðskilur það frá herberginu.

Barnaherbergi: Bjart barnaherbergi með gluggum á tvo vegu og parketi á gólfi.

STIGAHÚS - Stórir og miklir gluggar til austurs eru í stigahúsinu og hleypa mikilli dagsbirtu inn í húsið. Birtan frá gluggunum setur fallegan svip á tengingu hæðanna og gerir stigahúsið bjart og opið.

BÍLSKÚR OG GEYMSLA: Bílskúr og geymsla eru samtals 35,6 m². Bílskúrinn er bæði innan- og utangengur. Tvö bílastæði eru í innkeyrslu fyrir framan húsið og er hiti í planinu / affallið notað til snjóbræðslu.

LÓÐ OG SAMEIGN : Lóð hússins er um 803 fm og nýtist vel í kringum húsið. Hlið er norðan megin við húsið og því hægt að ganga þar upp að Hlíðarhjalla. Samkvæmt teikningum á lóðarleigusamningi er sameign húsanna við Fagrahjalla 42–60 leiksvæði og bílastæði.

---

Fagrihjalli 46 er rúmgóð og fjölskylduvæn eign með skemmtilegu skipulagi á þremur hæðum, góðum útisvæðum og mikilli birtu. Fjögur svefnherbergi eru í húsinu í dag og möguleiki er á því fimmta, sem gefur eigninni góða aðlögunarmöguleika fyrir fjölskyldur af ólíkum stærðum. Arininn, stórir gluggar og góð tenging við verandirnar skapa hlýlegt og bjart heimili þar sem bæði inni- og útirými nýtast vel.

- Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.

- Ertu í söluhugleyðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat.

Heimasíða RE/MAX

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

· Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar)af heildarfasteignamati.

· Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.

· Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.

· Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk