Orkureiturinn D2 207
108 Reykjavík
Ásett verð: 77.900.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 75,7 m²
- Herbergi
- 2
- Svefnherbergi
- 1
- Baðherbergi
- 2
- Byggingarár
- 2026
- Fermetraverð
- 1.029.062 kr.
Lýsing
Jason Kristinn s. 7751515 á Betri Stofunni og Safír byggingar ehf kynna með stolti Orkureitinn . Glæsileg ný íbúð við Grensásveg 6 . Glæsilegt lyftuhús, sannkallaður sælureitur við Laugardalinn. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar með vönduðum Nobilia Innréttingum frá GKS, flísalögðum baðherbergjum en án megingólfefna. Rut Kára stýrir innanhússhönnun og er sérstök áhersla lögð á gott flæði dagsbirtu. Svansvottaðar íbúðir .
Heimasíða Orkureitsins
Orkureitur - Grensásveg, íbúð 207 er 2ja herbergja 75,7 fm að meðtalinni geymslu í kjallara. Íbúðin er við Grensásveg 6 og snýr til suðurs og suðvesturs.
Flæði íbúðar:
Komið inní anddyri með fataskápum. Gólfhiti er í íbúðinni.
Baðherbergi með sturtu og þvottaaðstöðu innaf.
Svefnherbergi með góðum fataskápum.
Alrými tengir saman eldhús, borðstofu og stofu og er með gólfsíðum gluggum.
Úr alrými er gengið út á svalir til suðvesturs sem eru 6,5 fermetrar.
Eldhúsið er með glæsilegri innréttingu frá GKS með eyju.
Gólfsíðir gluggar og gólfhit ásamt loftskiptakerfi gefa aukin gæði.
Sérgeymsla er 9,7 fm. er í kjallara og aðgengi í lokaðan bílakjallara þar sem möguleiki er að leigja bílastæði.
Innréttingaþema er Safír Klassík. Vönduð eldhústæki frá Siemens, Elica og Bora.
Aðgengi að sameiginlegri líkamsrækt.
Nánar um Orkureitinn:
Bjartar og vel hannaðar íbúðir. Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði.
Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús.
Nánari upplýsingar veita sérfræðingar Betri Stofunnar:
Jason Kristinn Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1515 - tölvupóstur: jason@betristofan.is
Telma Rut Frímannsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 772-3555 - tölvupóstur: telma@betristofan.is