Strandgata 4

740 Neskaupstaður

Ásett verð: 39.900.000 kr.

Strandgata 4
Stærð
100 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1959
Fermetraverð
399.000 kr.

Lýsing

Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (bjarni@remax.is/s: 662-6163 ) kynnir mikið endurnýjaða og fallega fjögurra herbergja efri sérhæð í tvíbýli við Strandgötu 4 á Norðfirði. Góð staðsetning og fallegt útsýni. Hæðin er skráð 100fm samkv. HMS og skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu/borðstofu, þrjú svefnherbergi og baðherbergi.

Nánari lýsing:

Forstofa er flísalögð, nett fatahengi, hiti í gólfi, lúga upp á háaloft.

Eldhús með innréttingu frá Brúnás, hvít og eik, vönduð tæki, háfur, helluborð, gott vinnupláss, nett eyja sem hægt er að sitja við, korkflísar á gólfi.

Stofa og borðstofa eru í opnu rými, gluggatjöld frá Álnabæ í gluggum sem vísa í suður, útgengt á svalir, eikarparket á gólfi.

Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni, fjórfaldur fataskápur er í hjónaherbergi, eitt frekar lítið, öll herbergin eru með eikarparket á gólfi.

Baðherbergi er dúklagt, baðkar með sturtu aðstöðu, tengi/aðstaða fyrir þvottavél, gluggi.

Nýlegar framkvæmdir samkv seljendum:

2023 Skipt var um hurðir og loftið í borðstofu og stofu og hjónaherbergi klætt.

2024 Tröppur múraðar

2025 Þak endurnýjað (lektað) sem og gluggar og svalahurð.

Rafmagnsofnar í borðstofu, stofu og baðherbergi endurnýjaðir.

Strandgata 4 hentar vel sem fyrstu kaup. Stutt er í góðar gönguleiðir og útivistarsvæði, leikskóla, grunnskóla, verkmenntaskóla, íþróttahús og sjúkrahús.

Allar upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða bjarni@remax.is.

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar, sjá upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.