Valshlíð 2

102 Reykjavík

Ásett verð: 105.900.000 kr.

Valshlíð 2
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
103,9 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2020
Fermetraverð
1.019.249 kr.

Lýsing

RE/MAX & Bjarný Björg Arnórsdóttir Lgf kynnir:

Vel staðsetta, björt og fallega 4ra herbergja 103,9 fm íbúð með stæði í bílageymslu í góðu lyftuhúsi í Valshlíð 2, 102 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 03-02. Svalir sem snúa til suðurs inn í garðinn og sér merkt bílastæði í lokuðum bílakjallara.

Björt og falleg fjölskylduvæn íbúð sem vert er að skoða!

Nánari upplýsingar gefur :

Bjarný Björg Arnórsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 694-2526 / bjarny@remax.is

SMELLTU HÉR og skoðaðu þessa eign í 3 - D, Þrívíðu umhverfi

Eignin skiptist í: Forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Auk bílastæðis í bílakjallara.

Nánari lýsing:

Forstofa : Rúmgóð forstofa með skápum, harðparket á gólfi.

Stofa : Opin og björt stofa samtengd við borðstofu og eldhús í einu opnu rými. Harðparket á gólfi.

Eldhús : Hvít innrétting með góðu skápaplássi, spanhelluborði, innbyggðri uppþvottavél, ofn í vinnuhæð. Harðparket á gólfi.

Hjónaherbergi : Gott herbergi með fataherbergi og góðu skápaplássi. Harðparket á gólfi.

Barnaherbergi I: Gott herbergi með góðum skápum, harðparket á gólfi.

Barnaherbergi II: Gott herbergi með góðum skápum, harðparket á gólfi.

Baðherbergi : Rúmgott baðherbergi með sturtuklefa, upphengdu salerni, góðri innréttingu og speglaskáp. Flías á gólfi og veggjum.

Þvottahús : þvottahús með borði og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Geymsla : 8,4 fm geymsla í sameign, ásamt hjólageymslu.

Bílastæði í bílakjallara er með rafhleðslu.

Sameiginlegur garður er einstaklega fallegur og skjólgóður. Gróður og hellulagðir/steyptir gangstígar sem að hluta til eru með snjóbræðslu. Bekkir og leiksvæði með leiktækjum.

Frábær staðsetning við rætur Öskjuhlíðar, nálægt miðpunkti miðbæjarins. Stutt er í alla helstu þjónustu, frábærar gönguleiðir, íþróttir, samgöngur, iðandi mannlíf, skóla og stóra vinnustað

Nánari upplýsingar gefur :

Bjarný Björg Arnórsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 694-2526 / bjarny@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. (Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4%)

2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.

3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. 2.500 kr. af hverju skjali.

4. Lántökugjald lánastofnunar - sjá heimasíður lánastofnanna.

5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900. kr. m.vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.