Sundstræti 31A
400 Ísafjörður
Ásett verð: 54.900.000 kr.

- Tegund
- Parhús
- Stærð
- 172,300000762939 m²
- Herbergi
- 5
- Svefnherbergi
- 4
- Baðherbergi
- 2
- Byggingarár
- 1920
- Fermetraverð
- 318.630 kr.
Lýsing
Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - [link] - Til sölu er Sundstræti 31A Ísafirði. Töluvert endurnýjað hús á tveimur hæðum auk kjallara, vel staðsett nálægt miðbænum.
Á jarðhæð er forstofugangur, eldhús, baðherbergi og tvískipt stofa. Á efri hæð er stigapallur, baðherbergi og fjögur svefnherbergi. Í kjallara þvottaherbergi, þrjár geymslur og gangur.
Nánari lýsing:
Komið inn í forstofugang með flísum á gólfi.
Eldhús frá 2019, hvít innrétting, helluborð og ofn, parket á gólfi.
Gott baðherbergi frá 2019, sturtuklefi, innrétting og skápapláss, tengi fyrir þvottavél. dúkur á gólfi.
Rúmgóð tvískipt stofa með parketi á gólfi, panill í lofti.
Stigi upp á 2.hæð, þar er teppalagður stigapallur og fataskápur.
Fjögur rúmgóð svefnherbergi, parket á gólfum. Stórt 17,2 ílangt herbergi með aðgengi innan af öðru herbergi.
Baðherbergi endurnýjað 2024, sturtuklefi, innrétting, parket á gólfi og fibo plötur á veggjum.
Stigi niður í kjallara, þar er þvottaherbergi og þrjár sérgeymslur.
Útgangur úr kjallara út í bakgarð í gegnum hlera.
Bakvið hús er svo lítill garður með sólpalli. Aðgengi að garði í gegnum port á milli húsa.
Húsið stendur á eignarlóð.
Framkvæmdasaga:
Eldhús, baðherbergi, gólfefni, rafmagnstafla og tenglar endurnýjað 2019.
Baðherbergi efri hæð endurnýjað 2024.
Skipt var um þakjárn um 2005 að sögn fyrri eigenda.