Þverárdalur sumarhús

671 Kópasker

Ásett verð: 26.900.000 kr.

Þverárdalur sumarhús
Tegund
Sumarhús
Stærð
57,7 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2003
Fermetraverð
466.205 kr.

Lýsing

Eignaver 460-6060

Freyjulundur í Þverárdal í Öxarfirði.

Um er að ræða fallegan sumarbústað, samtals 57,7 fm., ásamt gestahúsi/geymslu sem ekki er inni í skráðum fermetrum. Freyjulundur stendur á leigulóð nr. 16 í landi Þverár í Öxarfirði, en Þverárdalur er einstaklega skjólgóður og gróðursæll.

Húsið hefur mikið verið endurnýjað á síðustu árum.

Byggt var við bústaðinn 2021 og hann stækkaður um eitt herbergi og skiptist hann í forstofu, stofu og eldhús í einu rými, tvö svefnherbergi, geymslu/þvottahús og baðherbergi. 8 fm. gestahús/geymsla er við vesturhlið hússins og er það hitað upp með rafmagni.

Nánari lýsing:

Forstofa , parket og fatahengi.

Stofa og eldhús , nýleg svört innrétting frá IKEA, innbyggður ísskápur fylgir með við kaupin.

Svefnherbergin eru bæði ágætlega rúmgóð, nýlegt parket á gólfum.

Baðherbergið er með parketi á gólfi, sturta og gluggi með opnanlegu fagi.

Lítil geymsla/þvottahús er innaf forstofu, parket á gólfi og hillur.

Skipt um eldhúsinnréttingu og gólfefni á árunum frá 2021 til 2023.

Gestahús , parket á gólfi, gengið inn af sólpalli vestan við húsið.

Annað:

- Rúmgóð c.a. 68 fm verönd, aðstaða fyrir heitan pott.

- Húsið nýlega málað utan.

- 8 fm. gestahús/geymsla sem ekki er í skráðum fermetrum.

- Upphitun, rafmagnsofnar, vatn hitað með 3 fasa gegnumstreymishitara.

- Lagnir hafa verið endurnýjaðar að miklu leiti.

- Rafmagn hefur verið endurnýjað að miklu leiti, þriggja fasa rafmagn.

- Einstakt umhverfi í skjólgóðum dal, Ásbyrgi, Dettifoss og þjóðgarðurinn í stuttri akstursfjarlægt.

- Góðar silungsveiðiár eru í næsta nágrenni og stutt niður að sjó.

Húseignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu ehf.

Nánari upplýsingar veita:

Begga s: 845-0671 / begga@eignaver.is

Arnar s: 898-7011 / arnar@eignaver.is

Tryggvi s: 862-7919 / tryggvi@eignaver.is