Hraunhvammar 4

805 Selfoss

Ásett verð: 15.000.000 kr.

Hraunhvammar 4
Tegund
Lóð
Herbergi
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0

Lýsing

FastVest og Soffía Sóley lögg.fasteignasali kynna: Eignarlóðina Hraunhvammar 4, Grímsnes- og Grafningshreppi. ÚTSÝNISLÓÐ HITAVEITA

Hraunhvammar er skemmtilegt sumarhúsasvæði á vinsælum stað í skipulögðu sumarbústaðarhverfi í landi Ásgarðs í Grímsnes- og Grafningshreppi.

Hraunhvammur 4 er 8.190 fermetra eignalóð í Grímsnesi , rétt fyrir ofan Álftavatn við Ásgarðslæk, Ásgarðs í Grímsnesi.

Akstur frá Reykjavík ca. 50 mínútur og Selfoss 15 mínútur.

Stutt er í alla þjónustu og afþreyingu, m.a. golfvöll, veiði, sund og fleira. Auk þess er stutt í allar helstu náttúruperlur Suðurlands og þekktra staða: Skálholts, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins

Lóðin er gróin og stendur hátt og þaðan er frábært útsýni til allra átta.

Heimilt er að byggja eitt hús ásamt útihúsi (geymslu/ gestahús/ gróðurhús) á lóðinni innan byggingarreits. Möguleiki að tengjast hitaveitu.

Lokað svæði (rafmagnshlið), svæðið er afgirt með einni heildargirðingu.

Ársgjald í félag sumarhúsaeiganda á svæðinu er um kr. 20.000 á ári.

Teikning af ca. 60 fm bústað auk svefnlofts getur fylgt (allt nema rafmagnsteikningar)

Rafmagn, heitt og kalt vatn við lóðarmörk.

Nánari upplýsingar veitir:

Soffía Sóley Magnúsdóttir löggiltur fasteignasali soffia@fastvest.is / sími 846-4144

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.FastVest fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald FastVest með þér alla leið