Vetrarbraut 2- íbúð 305
210 Garðabær
Ásett verð: 79.900.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 79,8 m²
- Herbergi
- 2
- Svefnherbergi
- 1
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 2025
- Fermetraverð
- 1.001.253 kr.
Lýsing
Vetrarmýri er nýtt og heillandi hverfi sem rís miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu í nánd við Vífilsstaði, golfvöll GKG, Heiðmörk og nýja íþróttaaðstöðu í Miðgarði. Íbúðirnar eru einstaklega vel hannaðar, svansvottaðar með gæði og þægindi í fyrirrúmi. Innréttingar eru vandaðar og allt efnisval smekklegt og tímalaust.
Í hverri íbúð er loftskiptikerfi sem eykur loftgæði, stuðlar að heilnæmu innilofti og bætir líðan íbúa. Í bílakjallara fylgir öllum íbúðum eitt til tvö bílastæði og sumum þeirra fylgir einnig frístundaskúr eða bílskúr. Hverfið nýtur sterkra innviða Garðabæjar auk þess sem stutt er í marga af stærstu verslunarkjörnum höfuðborgarsvæðisins og fjölbreytta þjónustu. Góðar tengingar eru við stofnbrautir. Skipulag svæðisins hefur hlotið alþjóðlegu umhverfisvottunina BREEAM.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Gunnar Bergmann, Löggiltur fasteignasali í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is
Opinber skráning eignar:
Íbúð merkt 03-05 er vönduð tveggja herbergja íbúð. Fastanúmer eignar: 253-4887 . Birt flatarmál er 79.8 fm með svölum og sérgeymslu í sameign. Eitt bílastæði fylgir eigninni í bílageymslu. Á þriðju hæð í þessum íbúðum er boðið uppá vandaðri innréttingarpakka. Dökkbrúnir skápar og eldhúsinnrétting með stein á borðum, innfelldum ísskáp og uppþvottavél. Góð aðstaða í eldhúsi. Alrýmið í íbúðinni er rúmgott og bjart, fallegt útsýni úr stofu og af svölum. Svefnherbergið er einstaklega rúmgott með góðu fataherbergi.
Tölvumyndir eru af sýningaríbúðum.
**Sækja söluyfirlit**
**Heimasíða verkefnis**
Afhending miðast við kaupsamning
Nánari upplýsingar veita fasteignasalar Eignamiðlunar:
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson 864-5464 gudlaugur@eignamidlun.is
Kári Sighvatsson 899-8815 kari@eignamidlun.is
Gunnar Bergmann Jónsson 839-1600 gunnarbergmann@eignamidlun.is
Brynjar Þ. Sumarliðason 896-1168 brynjar@eignamidlun.is
Lilja Guðmundsdóttir 649-3868 lilja@eignamidlun.is
Alfreð Valencia 776-2150 | alfred@eignamidlun.is