Strandvegur 9

210 Garðabær

Ásett verð: 490.000 kr.

Strandvegur 9
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
119,2 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2004
Fermetraverð
4.111 kr.

Lýsing

Lúxus íbúð til leigu:

Glæsileg 4ra herbergja íbúð (3 svefnherbergi) á efstu hæð við sjóinn með stórkostlegu útsýni, aukinni lofthæð og með stæði í bílageymslu. Viðmiðunar leiguverð er um kr.490.000. á mánuði.

Sjá myigloo

Forstofa er parketlögð og með fataskápum.

Þvottahús er innan íbúðar með innréttingu og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.

Eldhús er parketlagt og opið við stofu sem mynda alrými eignarinnar. Falleg viðar innrétting með innbyggðri uppþvottavél og stór eyja með quartz stein frá Granítsmiðjunni. Bakarofn er í vinnuhæð.

Stofa er rúmgóð og björt með verulega aukinni lofthæð og innbyggðri lýsingu í loftum. Úr stofu er útgengi á rúmgóðar svalir, frá stofu er mjög fallegt útsýni út á sjóinn, yfir borgina og víðar.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með sturtuaðstöðu og handklæðaofn. Innrétting með hvítum vask, spegil og góðu skápaplássi.

Þrjú svefnherbergi, tvö 15 fm með góðu skápaplássi og eitt 9 fm.

Með íbúðinni fylgir bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu, sérgeymsla er í sameign sem telur 7,7 fm að stærð ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu í sameign. Stigagangur er mjög snyrtilegur með flísum og teppi. Myndavéladyrasími er í íbúð.

Áhugasamir sendið póst á :

Sunna Björg

sunnahe@gmail.com