Norðurbraut 25b

220 Hafnarfjörður

Ásett verð: 129.900.000 kr.

Norðurbraut 25b
Tegund
Einbýlishús
Stærð
142,5 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1945
Fermetraverð
911.579 kr.

Lýsing

Glæsilegt og vel staðsett 142,5 fm einbýli á tveimur hæðum með bílskúr við Norðurbraut 25b, 220 Hafnarfirði.

Eignin skiptist í 115 fm íbúð og 27,5 fm bílskúr, samtals 142,5 fm skv. HMS.

Neðri hæð: Anddyri með fatahengi. Aðgangur í lagna/skriðkjallara úr anddyri. Baðherbergi með walk-in sturtu, innbyggðum blöndunartækjum og vegghengdu salerni. Þvottahús með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, þar á eftir að loka veggjum og lofti. Eldhús, stofa og borðstofa í rúmgóðu og björtu alrými á tveimur pöllum með útgang á verönd og með hljóðdúk í lofti. Eldhús með ofni í vinnuhæð, spanhelluborði, innbyggðum ísskápi og frysti og uppþvottavél og eyju ásamt góðu skápaplássi og vinnuplássi. Ullarteppalagður stigi á efri hæð.

Skriðkjallari er undir hluta hússins, notaður sem geymsla í dag.

Efri hæð: Þrjú svefnherbergi. Möguleiki á að bæta við auka baðherbergi, geymslu eða barnaherbergi á efri hæð.

Óeinangraður bílskúr sem þarfnast viðhalds. Aðgengi er að köldu vatni ásamt rafmagni í bílskúr.

Garðurinn er grófjafnaður að hluta og pallalagður að hluta. Heitapottaskel getur fylgt með kaupunum.

Húsið er nýuppgert að miklu leyti, m.a.:

- Nýjar pípu- og raflagnir.

- Nýjar inni- og útihurðar.

- Nýjir gluggar á neðri hæð, nema í baðherbergi.

- Snjallstýrð Plejd lýsing.

- Nánari upplýsingar um framkvæmdir á húsinu má sjá á upplýsingablaði frá seljanda sem nálgast má hjá fasteignasala.

Nánari upplýsingar veitir Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í s. 772-7376 / aron@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.

[link]

[link]

[link]