Orkureitur D1-803 Grensásvegur 2

108 Reykjavík

Ásett verð: 331.100.000 kr.

Orkureitur D1-803 Grensásvegur 2
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
232 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Byggingarár
2025
Fermetraverð
1.427.155 kr.

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Kynntu þér nýja fjármögnunarleið - sjá neðar.

Eignamiðlun og Safír byggingar ehf kynna með stolti nýjar í öðrum áfanga (D-húsi) á Orkureitnum við Suðurlandsbraut 38-44 og Grensásveg 2-6. Glæsilegt lyftuhús, sannkallaður sælureitur við Laugardalinn. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar með vönduðum Nobilia Innréttingum frá GKS, flísalögðum baðherbergjum en án megingólfefna. Rut Kára stýrir innanhússhönnun og er sérstök áhersla lögð á gott flæði dagsbirtu.

Orkureitur - Grensásvegur 2B, íbúð 08-03 er 5 herbergja 232,0 fermetra. Íbúðinni fylgir bílskúr merktur 05-0041 sem hluti séreignar og tvö sérmerkt bílastæði, B022 & B052, í bílakjallara.

Íbúðin er með þaksvölum. Með völdum íbúðum fylgir heitur pottur og sauna.

NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Ólafur H. Guðgeirsson, löggiltur fasteignasali í síma 663-2508, olafur@eignamidlun.is

Smellið hér til að skoða heimasíðu verkefnisins Orkureiturinn.is

**Sækja söluyfirlit**

Fyrir kaupendur á Orkureit er boðið uppá nýja fjármögnunarleið:

SAFÍR20 er fjármögnunarleið sem getur hentað vel til að binda minna eigið fé í húseign, lækka lántöku og greiðslubyrði. Tryggðu þér góða íbúð með skynsamlegri fjárfestingu og lægri greiðslubyrði á mánuði. Sjá nánar inná SAFÍR20 .

Orkureitur - Grensásvegur 2B, íbúð 08-03 er 232 fermetra fimm herbergja íbúð, ásamt bílskúr og bílastæði, í nýju glæsilegu lyftuhúsi á einstaklega góðum stað rétt við Laugardalinn. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 232 fermetrar með 25 fermetra bílskúr merktur K1-041 og 22,2 fermetra sérgeymslu merkt K1-033 í kjallara hússins. Íbúðinni fylgir stæði, merkt K1-B052, til afnota í 10 ár.

Innréttingaþema er Safír Premíum (900) . Val þegar kemur að innréttingum og frágangi. Fimm innréttingaþemu í boði frá Nobilia (Easytouch frontar) og möguleiki á innréttingum frá Leicht (spónlagðar). Steinn á borðum. Vönduð eldhústæki frá Siemens, Elica og Bora. Vínkælir frá Temptech. Innfelldar innihurðir. Innbyggð Vola blöndunartæki á baðherbergjum.

Afhending íbúðanna: Gert er ráð fyrir að afhending fyrstu íbúða við Suðurlandsbraut 38-44 í nóvember/desember 2025 (D1/D2) og í janúar 2026 (D3) og við Grensásveg 2-6 í febrúar/mars 2026 (D4/D5).

Nánar um Orkureitinn:

Bjartar og vel hannaðar íbúðir

Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði. Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús. Fyrsta áfanga (A-húsi) er lokið en áformað er að allri uppbyggingu á svæðinu verði lokið í lok árs 2027.

Framtíðarheimili á Orkureitnum

Orkureiturinn er skipulagður og hannaður með sjálfbærni og vistvæn sjónarmið að leiðarljósi. Sérstök áhersla er lögð á endurnýtingu orku og blágrænar ofanvatnslausnir. Á byggingartíma er lögð áhersla á endurvinnslu byggingarefnis, jarðvegs og gróðurs á svæðinu. Skipulag reitsins er það fyrsta í Reykjavík sem vottað er af BREEAM Communities vistvottunarkerfinu og hefur það fengið næsthæstu einkunn, sem er „Excellent“. Jafnframt er stefnt að því að allar íbúðir á reitnum verði Svansvottaðar.

Allt hverfið í kringum Orkureitinn er í mikilli uppbyggingu. Staðsetningin er í miðju verslunar- og þjónustukjarna í Skeifunni, Glæsibæ og Múlunum, svæði sem er miðsvæðis í þróunarás Reykjavíkurborgar við væntanlega Borgarlínu.

Nánari upplýsingar gefa löggiltir fasteignasalar Eignamiðlunar:

Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815 , kari@eignamidlun.is

Magnús Þórir Matthíasson löggiltur fasteignasali, sími 895-1427 , magnus@eignamidlun.is

Rögnvaldur Örn Jónsson löggiltur fasteignasali, sími 660-3452 , rognvaldur@eignamidlun.is

Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali, sími 839-1600 , gunnarbergmann@eignamidlun.is

Ólafur H Guðgeirsson löggiltur fasteignasali, sími 663-2508 , olafur@eignamidlun.is

Oddný María Kristinsdóttir löggiltur fasteignasali, sími 777-3711 , oddny@eignamidlun.is

Guðlaugur Ingi Guðlaugsson löggiltur fasteignasali, sími 864-5464 , gudlaugur@eignamidlun.is ***

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook