Laugaborg íbúð 323

105 Reykjavík

Ásett verð: 90.100.000 kr.

Laugaborg íbúð 323
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
94 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2025
Fermetraverð
958.511 kr.

Lýsing

Trausti fasteignasala kynnir Laugaborg vandað og glæsilegt nýtt lyftufjölbýli við Kirkjusand. Íbúðir er fjölbreyttar að skipulagi frá 2ja til 4ra herbergja á 3 – 6 hæðum. Skjólgóður inngarður og sameiginlegur þakgarður bjóða upp á skemmtilegar stundir utandyra og útsýni til fjalla og sjávar. Íbúðirnar bjóða upp á vandaðar innréttingar, gólfhita, svalir eða sérafnotreiti og sjálfstætt loftræstikerfi er í þeim öllum. Svalalokun, samkvæmt íslenskum stöðlum, er á öllum svölum í úthring hússins.

Hlekkur á ítarlegar upplýsingar er hér.

Bílakjallari undir húsinu er stór og rúmgóður og verða rúmlega þúsund stæði og gott aðgengi að rafhleðslustöðvum. Íbúar hússins hafa aðgang að stæði í bílakjallara gegn hóflegu gjaldi.

115 íbúðir í íbúðakjarnanum á 3 til 6 hæðum og afhendast í 4 áföngum. Húsið er vel hannað þegar kemur að birtustigi og hverfist um skjólgóðan inngarð. Frábær staðsetning í nýju hverfi á Kirkjusandi, þar sem líflegur Laugardalurinn er í göngufæri með allt það sem hann hefur upp á að bjóða og örstutt í miðbæ Reykjavíkur.

Afhending við kaupsamning.

Bókið skoðun hjá Viktoríu R. Larsen lgf. í síma 618-5741 eða á netfanginu viktoria@trausti.is

Nánari lýsing:

Laugaborg (íbúð 323) er frábær 3ja herbergja íbúð á 3. hæð með norð-vestur svölum.

Forstofa er með með fataskáp sem nær upp í loft.

Stofa/alrými er björt og rúmgóð með útgengi á norð-vestur svalir með gustlokun.

Eldhús með fallegri sérsmíðaðri innréttingu með eldunareyju og quartz plötum á borðum. Span helluborð í eyju með innbyggðum gufugleypi. Bakaraofn með kjöthitamæli og sjálfhreinsibúnaði.

Svefnherbergi eru 2 og er annað með fataskáp sem nær upp í loft.

Baðherbergi er með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Egger, quartz borðplötu og sturtu með Unidrain gólfrennupakka.

Þvottahús með flísum á gólfum og upphengdum innréttingum.

Geymsla íbúðar er fm 9,6 fm

(Myndir á vef eru dæmi um útlit eignar en endurspegla ekki alltaf nákvæmlega auglýsta eign).

Bókið skoðun eða fáið nánari upplýsingar hjá:

Viktoría R. Larsen lgf. í síma 618-5741 eða á netfanginu viktoria@trausti.is

Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is

Auðun Ólafsson lgf. í síma 894-1976 eða á netfanginu audun@trausti.is

Guðbjörg Sveinbjörnsdóttir lgf. í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is

Hallgrímur Hólmsteinsson lgf. í síma 896-6020 eða á netfanginu hallgrimur@trausti.is

Kristín María Stefánsdóttir lgf. í síma 837-1177 eða á netfanginu kristin@trausti.is

Kristján Baldursson lgf. í síma 867-3040 eða á netfanginu kristjan@trausti.is