Greniteigur 26

230 Reykjanesbær

Ásett verð: 87.500.000 kr.

Greniteigur 26
Tegund
Raðhús
Stærð
170,300000762939 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Byggingarár
1978
Fermetraverð
513.799 kr.

Lýsing

Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu 4ra herbergja 134,6 fm steypt einbýlishús á einni hæð ásamt 35,7 fm bílskúr.

Birt stærð eignarinnar er 170.3 fm.

------ Skipti eru möguleg á minni fasteign í Reykjanesbæ -----

Forstofa er flísalögð og þar er skápur.

Hol er parketlagt og hurð er frá holi út á góða afgirta verönd með heitum potti.

Í eldhúsi eru korkflísar á gólfi, þar er borðkrókur og góð innrétting, helluborð, ofn og vifta. Gengið er inn í eldhús bæði frá holi og borðstofu.

Gangur er parketlagður.

Stofa og borðstofa hafa parket á gólfi.

Á baðherbergi eru korkflísar á gólfi og flísaplötur á veggjum, þar er góð innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og góð sturtuaðstaða stúkuð af með gleri.

Svefnherbergin eru þrjú og eru þau öll parketlögð. Búið er að breyta einu herberginu í fataherbergi. Góður fataskápur er í hjónaherbergi.

Í þvottahúsi eru flísar á gólfi, þar er góð hvít innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara og handklæðaofn.

Bílskúr er fullbúinn, nýlega er búið að útbúa íbúð í bílskúr sem skiptist í eldhús/stofu, baðherbergi og svefnherbergi.

*Innkeyrsla er hellulögð

*Allt er nýlegt á baðherbergi

*Búið er að endurnýja þakjárn

*Búið er að endurnýja neyslulagnir

*Forhitari er á miðstöðvarlögn

*Búið er að endurnýja útidyrahurðir og hluta af gluggum og glerjum.

*Góð afgirt verönd er á lóð með heitum potti og lóðin er öll graslögð.

Nánari upplýsingar um eignina veitir:

Halldór Magnússon lfs

S: 420-4000 / 863-4495

dori@studlaberg.is