Bjarmastígur 3

600 Akureyri

Ásett verð: 59.900.000 kr.

Bjarmastígur 3
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
101,6 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
0
Byggingarár
1939
Fermetraverð
589.567 kr.

Lýsing

Nordik fasteignasala kynnir eignina Bjarmastígur 3, 600 Akureyri.

- Hafðu samband í síma 4621212 eða í tölvupósti á nordik@nordikfasteignasala.is -

*** Sjá myndband af eign hér ***

Bjarmastígur 3 er 101,6 fm. hæð í tvíbýlishúsi á frábærum stað við miðbæ Akureyrar. Falleg fasteign með útsýni yfir Eyjafjörðinn og miðbæ Akureyrar. Gengið er inn um sérinngang og upp stiga inn á bjart miðsvæði. Þaðan er gengið inn í bjart og vel skipulagt eldhús, flísalagt baðherbergi með sturtu, opinni stofu og 2 rúmgóð svefnherbergi, annað með góðum skáp og hitt með opnum skáp.

Nánari lýsing:

Forstofa: á jarðhæð hússins, flísalagt. Gengið er upp teppalagðan stiga upp á hæðina og niður í sameign.

Miðrými : Bjart miðrými með pússuðu hvítlökkuðu gólfi.

Eldhús: Er með innréttingu með góðu skápa og skúffuplássi.

Baðherbergi : Flísalagt í hólf og gólf, með innfelldri lýsingu, sturtu og upphengdi salerni.

Stofa: Opin og björt stofa, pússað hvítlakkað gólf. Frábært útsýni yfir miðbæ Akureyrar og yfir í Vaðlaheiði.

Hjónaherbergi: Er með pússuðu hvítlökkuðu gólfi og góðum fataskáp. Þaðan er gengið út á litlar svalir.

Svefnherbergi: Er með pússuðu hvítlökkuðu gólfi, opinn skápur. Fallegt útsýni yfir miðbæ og yfir í Vaðlaheiði.

Þvottahús : Í kjallara hússins er sameiginlegt þvottahúss.

Geymsla: Úr þvottahúsi er gengið í parketlagða geymslu með glugga og vask. Mætti nýta sem herbergi með lágmarks breytingum.

Annað:

- Falleg eign í göngufæri frá miðbæ Akureyrar.

- Einstakt útsýni yfir miðbæ Akureyrar og yfir í Vaðlaheiði.

- Eignin var drenuð og jarðvegsskipt fyrir nokkrum árum.

Nánari upplýsingar veitir

Andres Már Magnússon lögmaður og lögg. fasteignasali, í síma 4621212 eða í tölvupósti á nordik@nordikfasteignasala.is

​​​​​​Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Nordik fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.