Svarfaðarbraut 19 norðurendi

620 Dalvík

Ásett verð: 96.500.000 kr.

Svarfaðarbraut 19 norðurendi
Tegund
Parhús
Stærð
140,3 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Fermetraverð
687.812 kr.

Lýsing

Fasteignasalan Byggð 464-9955

Svarfaðarbraut 19

Ný glæsileg þriggja herbergja parhúsaíbúð með sambyggðum bílskúr á frábærum stað á Dalvík, íbúðin er í norðurenda. Eignin er samtals 140,3 fm. að stærð þar af er íbúð 111,8 fm. og bílskúr 28,5 fm. Gólfhiti og loftskiptikerfi er í íbúð, hvítar innihurðir og allar innréttingar koma frá Brúnás. Eignin afhendist fullbúin með gólfefnum.

Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu í opnu rými, baðherbergi, tvö svefnherbergi, þvottahús/geymslu og bílskúr.

Anddyri með parketi á gólfi og fataskáp.

Eldhús og stofa í opnu rými, útgengi út á pall úr stofu. Góð innrétting í eldhúsi ásamt eyju, þar eru skúffur og helluborð. Stæði fyrir ísskáp, uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð.

Baðherbergi með flísum á gólfi og í votrými í sturtu. Sturta með glerskilrúmi og upphengt wc. Góð innrétting við vask ásamt speglaskápum. Útgengi er út á lóð til austurs frá baðherbergi.

Svefnherbergin eru tvö bæði eru með parketi á gólfi og fataskápum.

Þvottahús/geymsla , góð innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Loftræstistokkur/stýrikerfi er í skáp fyrir ofan þvottavél og þurrkara og í honum er því ekkert bak eða hillur.

Bílskúr með auka inngangi og er einnig innangegnt í gegnum þvottahúsi. Rafdrifin bílskúrshurð. Tvö bílastæði verða framan við hús fyrir hverja íbúð.

*Athugið að innréttingar og gólfefni í vefsjánni endurspegla ekki endanlegt útlit þeirra við afhendingu.

Laus til afhendingar í vetur

Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar þess er óskað

Verktaki: Tréverk ehf.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Frekari upplýsingar:

bjorn@byggd.is

greta@byggd.is

halla@byggd.is

olafur@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.

S:464 9955