Aðalstræti 5 nh

600 Akureyri

Ásett verð: 51.900.000 kr.

Aðalstræti 5 nh
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
117,7 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1948
Fermetraverð
440.952 kr.

Lýsing

EIGNAVER 460-6060

Aðalstræti 5 nh, 600 Akureyri

Björt og snyrtileg þriggja herbergja neðri sérhæð á góðum stað í Innbænum á Akureyri.. Eignin er samtals 117,7 fm

Íbúðin skiptist í forstofu, hol, stofu, tvö svefnherbergi, eldhús, baðherbergi auk sérgeymslu í kjallara og sameiginlegu þvottahúsi.

Aðalinngangur er frá Aðalstrætinu á norðurhlið hússins. Á austurhlið hússins er bakdyrainngangur þar sem gengið er niður í kjallara hússins.

Nánari lýsing:

Forstofa flísar á gólfi.

Hol er í miðri íbúðinni, flísar á gólfum og úr holinu er farið inn í öll rými hæðarinnar. Hol var nýtt sem borðstofa

Eldhúsið flísar á gólfi og hvítri sprautulakkaðri og spónlagðri innréttingu. Flísar eru á milli efri og neðri skápa. Handklæðaofn er í rýminu og stæði er fyrir uppþvottavél.

Stofa flísar á gólfi.

Svefnherbergi eru tvö, bæði með flísum á gólfi og í öðru þeirra er nýlegur hvítur rúmgóður fataskápur og úr hinu útgangur út á sólpall til suðvesturs.

Baðherbergi flísar á gólfi, ljósri innréttingu, sturtuklefa og handklæðaofn á vegg. Opnanlegur gluggi er á baðherberginu og tengi fyrir þvottavél.

Kjallari er með rúmgóða sérgeymslu, sameiginlegt þvottahús og rúmgott sameiginlegt geymslurými. Útgangur er úr kjallara út í garð. Stigi liggur úr kjallara upp í íbúðina, í hol.

Lóðin er gróin og í óskiptri sameign. Núverandi eigendur hússins hafa skipt lóðinni þannig með sér að neðri hæð er með steypt bílastæði norðan við húsið og efri hæðin er með malborið bílaplan á suðu-vesturhorni lóðarinnar. Sólpallur er til suðvesturs.

Annað:

- Þak var endurnýjað árið 2014.

- Sér hiti og rafmagn er fyrir íbúðina.

- Íbúðin var öll máluð að innan 2026.

- Tenglar og rofar endurnýjaðir 2026.

- Snjóbræðsla í bílaplani og stigapalli, lokað kerfi.

- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.

Nánari upplýsingar veita:

Begga s: 845-0671 /begga@eignaver.is

Tryggvi s: 862-7919 / tryggvi@eignaver.is

Arnar s: 898-7011 / arnar@eignaver.is