Lindasíða 51 nh. með bílskúr

603 Akureyri

Ásett verð: 68.900.000 kr.

Lindasíða 51 nh. með bílskúr
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
110,4 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2007
Fermetraverð
624.094 kr.

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.is

Lindasíða 51-101 - Björt og falleg 3-4ra herbergja endaíbúð á jarðhæð ásamt bílskúr á frábærum stað í Síðuhverfi - heildarstærð 110,4 m² þar af bílskúr 23,0 m²

Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, geymslu sem nýtist sem fataherbergi í dag, þvottahús, sérgeymslu í sameign og bílskúr.

Nánari lýsing:

Forstofan er með harðparketi á gólfi og rúmgóðum hvítum fataskáp.

Eldhúsið er með harðparketi á gólfi, hvítri innréttingu, góðu skápa- og skúffuplássi, ljósri borðplötu og eyju þar sem ofn og helluborð er staðsett.

Stofan er björt og rúmgóð með stórum gluggum og harðparketi á gólfi.

Svefnherbergin eru tvö, bæði með harðparketi á gólfum og rúmgóðum hvítum fataskápum.

Geymslan/þriðja herbergið er með flísum á gólfi og nýtist í dag sem fataherbergi þar sem gert hefur verið hurðar gat af ganginum. Einnig væri hægt að nýta þetta sem barnaherbergi eða geymslu.

Baðherbergið var tekið í gegn 2026 og er flísalagt í hólf og gólf, með hvítri innréttingu með handlaug, spegla skáp, sturtu með glervængjum, vegghengdu wc, handklæða ofni og glugga með rafmagnsopnun.

Þvottahúsið er með flísum á gólfi og góðri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Þar er einnig vegghengdur vaskur og bekkpláss.

Sérgeymsla fylgir eigninni í sameign og einnig er geymsla úti undir stiga upp á efri hæð.

Bílskúrinn er 23,0 m² að stærð með lökkuðu gólfi, hillum og heitu og köldu vatni.

Annað:

- Baðherbergið var tekið í gegn 2026

- Endaíbúð á jarðhæð með góðu aðgengi og frábæru útisvæði

- Snjóbræðsla er í hellulagðri stétt fyrir framan

- Tvö sér bílastæði fylgja eigninni auk bílskúrsins

- Frábær staðsetning í Síðuhverfi þar sem stutt er í leik- og grunnskóla sem og líkamsræktina Bjarg, félagsaðstöðu eldri borgara og Norðurtorg

Nánari upplýsingar veitir:

Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.