Bjarkardalur 23A - 101

260 Reykjanesbær

Ásett verð: 72.500.000 kr.

Bjarkardalur 23A - 101
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
108,199999809265 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2023
Fermetraverð
670.055 kr.

Lýsing

Stuðlaberg Fasteignsala kynnir glæsilega 4ra herbergja 108,2fm búð á neðri hæð í nýlegu tveggja hæða fjölbýli í Innri Njarðvík.

------ Eignin er laus við kaupsamning ------

Forstofa er flísalögð og þar er góður skápur.

Gangur er parketlagður.

Í eldhúsi er parket á gólfi, þar er vönduð innrétting með eldunareyju, ofn og helluborð. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja með eigninni.

Stofa er parketlögð og hurð er út á steypta verönd frá stofu. Stofa og eldhús liggja saman í opnu og björtu rými.

Á baðherbergi eru flísar á gólfi og veggjum að hluta, þar er vönduð innrétting, upphengt salerni og góð sturtuaðstaða stúkuð af með gleri.

Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara er á baðherbergi.

Svefnherbergin eru öll parketlögð og skápar eru í þeim öllum.

*Eignin hefur sérinngang.

*Þrjú rúmgóð svefnherbergi.

*Hiti er í öllum gólfum eignarinnar.

*Steypt verönd er út frá stofu.

*Sér geymsla er 4,2fm.

Bjarkardalur 23 er tveggja hæða fjölbýlishús með sex íbúðum. Húsið er steinsteypt, útveggir einangraðir að utan og klæddir. Gluggar og útihurðir eru úr ál-tré samkvæmt byggingarlýsingu. Gólfhiti er í íbúðum og vélræn loftræsting í lokuðum rýmum. Eigninni fylgir eitt sérnotabílastæði. Auk þess eru sameiginleg bílastæði á lóð.

Nánari upplýsingar veita:

Haraldur lfs / halli@studlaberg.is / 661-9391

Halldór lfs / dori@studlaberg.is / 863-4495

Brynjar lfs / brynjar@studlaberg.is / 896-5464