Háahlíð 1
311 Borgarnes
Ásett verð: 49.500.000 kr.

- Tegund
- Sumarhús
- Stærð
- 82,6 m²
- Herbergi
- 4
- Svefnherbergi
- 3
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 2011
- Fermetraverð
- 599.274 kr.
Lýsing
** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt 82,6 m2 sumarhús á rólegum stað í landi Arnbjargarlækjar í Borgarbyggð. Eignin stendur á vel staðsettri 3.616,0 m2 leigulóð. Frábær staðsetning í aðeins um 75 mínútna akstursfjarlægð frá Mosfellsbæ. Stutt í sundlaug. Fallegt útsýni.
Sumarbústaðurinn skiptist í þrjú herbergi, baðherbergi, forstofu, eldhús, stofu og borðstofu. Svefnloft er yfir hluta hússins. Mjög stór timburverönd með heitum potti (rafmagnspottur) og geymsluskúr.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent
Nánari lýsing:
Forstofa er með fatahengi og parketi á gólfi. Úr forstofu er stigi upp á svefnloft.
Herbergi nr. 1 er með rúmi og parketi á gólfi.
Herbergi nr. 2 er með kojum og parketi á gólfi.
Herbergi nr. 3 er með kojum og parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með innréttingu, vegghengdu salerni og sturtuklefa. Úr baðherbergi er útgeng út á pall.
Hol er með parketi á gólfi. Úr holi er stigi upp á svefnloft.
Svefnloft er rúmgott með glugga og parketi á gólfi.
Eldhús er með hvítri L-laga innréttingu. Í innréttingu er innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, og sambyggð eldavél með helluborði og ofn. Parket á gólfi. Úr eldhúsi er opið inn í stofu.
Stofa er björt með parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt út á pall.
Geymsla/tengirými er við hlið inngangs.
Rafmagnsofnar eru í herbergjum. Innbú fyrir utan persónulega hluti fylgja með. Staðsett á rólegum stað í Borgarfirði. Stutt í sundlaug. Fallegt útsýni.
Verð kr. 49.500.000