Stórholt 22

105 Reykjavík

Ásett verð: 71.900.000 kr.

Stórholt 22
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
80,6 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Byggingarár
1947
Fermetraverð
892.060 kr.

Lýsing

Hannes Steindórsson kynnir:

Fjögurra herbergja mikið uppgerða íbúð með möguleika á leigutekjum í kjallara.

Tvö svefnherbergi í íbúð ásamt stóru svefnherbergi auk sér baðherbergis í kjallara, tilvalið til útleigu.

Rafmagn endurnýjað, vatns- og skólplagnir í íbúð endurnýjaðar, nýtt eldhús og baðherbegi.

Nýlegir gluggar eru í íbúðinni og í kjallaraherbergi.

Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, borðstofu, stofu, tvö svefnherbergi í íbúð og baðherbergi.

Sautján fm herbergi í kjallara ásamt sér baðherbergi, sameiginleg geymsla og sameiginlegt þvottahús.

Inngangur: Gengið er upp tröppur að utanverðu og þaðan inn í sameiginlegan inngang með 2. hæð.

Svefnherbergi: Tvö svefnherherbergi eru í íbúð, hjónaherbergi er rúmgott með miklu skápaplássi. Barnaherbergi með fataskáp. Harðparket á gólfum.

Eldhús: Eldhús og stofan eru í opnu og björtu rými með fallegum hornglugga í eldhúsi. Parket á gólfi.

Eldhúsið hefur verið endurnýjað með fallegri innréttingu og eldunareyju.

Baðherbergi: Baðherbergi er flísalagt með sturtuklefa og upphengdu salerni, baðhergið hefur verið endurnýjað.

Kjallari: Í kjallara er 16,9 m² herbergi ásamt sér baðherbergi með salerni, vaski og sturtuklefa.

Sameiginlegt þvottahús og sameiginleg geymsla.

Garðurinn er stór og fallegur.

Allar upplýsingar veitir: Hannes Steindórsson s.699-5008 hannes@fastlind.is