Hátún 6

105 Reykjavík

Hátún 6
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
70,1 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1970

Lýsing

RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einstaklega falleg og björt þriggja herbergja 70,2 fm. íbúð á 2. hæð í tveggja hæða fjöleignahúsi. Íbúðin telur forstofu, hol, eldhús, borðstofu og stofu, stórar suður svalir, tvö svefnherbergi og baðherbergi með góðri þvottaaðstöðu. Íbúðin getur verið laus fljótlega eða eftir samkomulagi.

KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Lilja í síma 867-1231 eða með tölvupósti gudrunlilja@remax.is

Eignin er mjög vel staðsett í grónu hverfi, öll helsta þjónusta í göngufæri og stutt í allar helstu samgöngur. Góð aðkoma að húsinu og næg bílastæði fyrir framan hús.

Nánari lýsing: Gengið er inn sameiginlegt stigahús austanmegin við húsið og þar upp á aðra hæð. Þrjár íbúðir deila inngangi.

Forstofa er parketlögð með fatahengi.

Eldhús með fallegri hvítri innréttingu og góðum efri skápum. Helluborð, bökunarofn og gufugleypir, parket á gólfum.

Borðstofa og stofa er í björtu og opnu rými, stórir gluggar í tvær áttir, parket á gólfum.

Svefnherbergin eru tvö , hjónaherbergi er mjög stórt og rúmgott með fataskápum (í dag nýtt sem barnaherbergi) og annað minna svefnherbergi sunnanmegin, með rennihurð, parket á gólfum. Úr herberginu er útgengt út á stórar suður svalir . Svefnherbergi við svalir var bætt við fyrir nokkrum árum og einfalt er að breyta til baka og stækka stofu/opna inní eldhús.

Baðherbergi er með nýlegri vaskinnréttingu með ágætu skápaplássi, flísalagðri sturtu, handklæðaofni og tveir góðir opnanlegir gluggar. Inn af sturtu er tengi fyrir þvottavél og þurrkara . Flísalagt gólf og veggir að hluta.

Bílastæði eru sameiginleg á lóð við húsið.

Íbúðin var talsvert endurnýjuð fyrir nokkrum árum, m.a. skipt um gólefni, rafmagnstengla/rofa og baðherbergi endurnýjað. Í sameign er sameiginleg geymsla.

Ath. fyrirhugað fasteignamat eignarinnar ´27 er kr. 61.600.000,-

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.