Baughús 18

112 Reykjavík

Ásett verð: 177.900.000 kr.

Baughús 18
Tegund
Einbýlishús
Stærð
272,2 m²
Herbergi
10
Svefnherbergi
7
Baðherbergi
3
Byggingarár
1989
Fermetraverð
653.564 kr.

Lýsing

Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Baughús.

Mikið útsýni. Auka íbúð

Einstaklega fallegt og bjart einbýlishús á tveimur hæðum á frábærum stað í Grafarvogi.

Á neðri hæð hússins er auka fjögurra herbergja íbúð með sér inngangi ásamt ca. 30 fm. herbergi einnig með sér inngangi.

Komið er inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi og stórum fataskáp. Úr forstofunni er komið inn í flísalagt alrými sem tengir saman alla hluta hæðarinnar.

Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf. Þar er snyrtileg, innrétting, baðkar og sturtuklefi.

Svefnherbergin á hæðinni eru þrjú, stórir skápar eru í hjónaherbergi.

Eldhúsið er með nýlegri, fallegri innréttingu, þar er mikið skápapláss og virkilega góð vinnuaðstaða. Góður borðkrókur er í eldhúsinu.

Borðstofan er rúmgóð og björt, þaðan er útgengt út á stórar svalir sem ná yfir tvær hliðar hússins.

Stofan er virkilega rúmgóð og björt með stórum gluggum. Fyrir framan húsið er skjólgóð, aflokuð verönd sem er á milli hússins og bílskúrsins. Þar er heitur pottur og garðskúr.

Á milli hæða er steyptur stigi. Niðri er stórt þvottahús og geymsla sem er ekki skráð inn í fermetratölu hússins.

Neðri hæð.

Fjögurra herbergja íbúð með sér inngangi af gafli hússins. Þar eru þrjú rúmgóð herbergi, stórt miðrými sem skiptist í stofu og eldhús ásamt baðherbergi með sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél.

Þarna er líka stórt ca. 30 fermetra fermetra herbergi, við hlið þess herbergis er baðherbergi með sturtuklefa. Möguleiki er á útleigu þar sem þetta herbergi hefur einnig sér inngang af gafli hússins.

Stórt þvottaherbergi ásamt geymslu er á hæðinni sem er nýtt af efri hæð í dag, þetta rými er ekki inn í skráðri fermetratölu hússins.

Garðurinn fyrir framan húsið er í sérlega góðri rækt. Þar er skjólgóður pallur / verönd með heitum potti og geymsluskúr.

Tvöfaldur stór bílskúr er framan við húsið. Gönguhurð er í bílskúrinn á hlið hans.

Gólfefni hússins eru parket og nýlegar flísar.

Þetta er virkilega fallegt, vel skipulagt fjölskylduhús sem bíður uppá mjög mikla möguleika vegna auka íbúðarinnar. Húsið er á frábærum stað í húsahverfinu þar sem stutt er í skóla, leikskóla íþróttastarfið hjá Fjölni.

Vantar allar gerðir eigna á skrá. fagleg og góð þjónusta.

Nánari upplýsingar veitir:

Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali

Fasteignasalan Grafarvogi

Sími 863-1126

josep@fastgraf.is

[link]