Grensásvegur 1 Turn 1.hæð 107

108 Reykjavík

Grensásvegur 1 Turn 1.hæð 107
Tegund
Atvinnuhúsnæði
Stærð
212,2 m²
Herbergi
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Byggingarár
2025

Lýsing

Háborg fasteignasala kynnir til leigu glæsilegt atvinnuhúsnæði á jarðhæð í nýjum glerturni við Grensásveg 1, 108 Reykjavík. Er verslunarhúsnæði á 1.hæð vestanmegin við Suðurlandsbraut. Hæðin er 192,2 fm og rými í kjallara 20 fm. Rýmið með sameignar fm er 278,2 fm.

Á jarðhæð turnsins er stór og veglegur aðalinngangur frá Suðurlandsbraut. Þar eru tvö rúmgóð og björt rými sem eru sérstaklega hönnuð fyrir veitinga-, verslunar- eða þjónusturekstur. Um er að ræða fjölhæf og vel staðsett rými sem henta sérstaklega vel fyrir kaffihús, veitingarekstur, sérverslanir, heilsutengd fyrirtæki eða aðra þjónustu.

Húsnæðið er staðsett í norðurenda lóðarinnar á móti Glæsibæ og sker sig úr með glæsilegri, bogadreginni glerhönnun sem spannar sjö hæðir. Húsnæðið er hluti af nýju og metnaðarfullu verkefni þar sem lögð er áhersla á vandað efnisval og nútímalega hönnun, með góðri samþættingu íbúða og atvinnustarfsemi á svæðinu.

Fyrirkomulag og möguleikar

Leigusali býður upp á sveigjanlega útfærslu innra skipulags og getur sniðið rýmin að þörfum leigutaka. Leiguverð ræðst af afhendingarstigi eignarinnar.

Staðsetningin er einstaklega hentug fyrir rekstur sem vill vera sýnilegur, miðsvæðis í borginni, þar sem mikill umgangur og góð aðkoma er að rýmunum — bæði gangandi og akandi.

Gott aðgengi og tengingar

Þessi rými bjóða upp á framúrskarandi aðstöðu fyrir fjölbreyttan rekstur á einum af best staðsettu gatnamótum Reykjavíkur. Aðgengi er mjög gott hvort sem er fyrir gangandi, hjólandi eða akandi vegfarendur.

Fyrsti áfangi Borgarlínunnar liggur fram hjá húsnæðinu og er fyrirhuguð stoppistöð í u.þ.b. 200 metra fjarlægð frá aðalinngangi að Suðurlandsbraut, sem styrkir enn frekar framtíðarverðmæti staðsetningarinnar.

Bílageymsla og vistvænar lausnir

Undir húsinu er tveggja hæða bílakjallari með möguleika á að tryggja allt að 10 bílastæði með hverju rými, eftir samkomulagi. Í kjallaranum eru einnig rafhleðslustöðvar og rúmgóð hjólageymsla. Áætlun er um að bjóða leigjendum aðgang að deilibílum í samstarfi við þjónustuaðila.

Pantið skoðun – við sýnum með stuttum fyrirvara.

Við erum sjálf til húsa á 6. hæð í sama turni og getum því brugðist hratt við fyrirspurnum og skoðunum.

Nánari upplýsingar veita:

Birkir – Sími: 867-3388 | Netfang: birkir@haborg.is

Jórunn , löggiltur fasteignasali – Sími: 845-8958 | Netfang: jorunn@haborg.is