HLÉSKÓGAR 10 EFRI HÆÐ

700 Egilsstaðir

Ásett verð: 94.900.000 kr.

HLÉSKÓGAR 10 EFRI HÆÐ
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
224,400001525879 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
1
Byggingarár
1979
Fermetraverð
422.906 kr.

Lýsing

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu HLÉSKÓGAR 10 EFRI HÆÐ , 700 Egilsstaðir.

Sex herbergja efri hæð í tvíbýlishúsi með bílskúr og auka íbúð á jarðhæð. Sér inngangur. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar. Gott útsýni, stutt frá leikskóla.

Húsið stendur við lítinn botnlanga, stutt í alla almenna þjónustu s.s. skóla og leikskóla. Smellið hér fyrir staðsetningu.

***Seljandi skoðar skipti á lítilli íbúð á Egilsstöðum***

Húsið er steypt, byggt árið 1979. Eignin er íbúð 160.0 m² bílskúr 64,4 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.

Skipulag eignar: Anddyri, baðherbergi, fimm svefnherbergi, sjónvarpshol, stofa, borðstofa, eldhús og þvottahús. Tveir bílskúrar, gróðurhús og garðhús.

Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |

Nánari lýsing:

Anddyri flísar á gólfi, fataskápur og skóskápur, frá anddyri er gengið inn í forstofuherbergi, þvottahús og gang sem liggur að öðrum rýmum.

Forstofuherbergi , plastparket á gólfi, tvöfaldur fataskápur.

Baðherbergi , flísar á gólfi, vaskinnrétting, salerni, baðkar og flísalögð sturta.

Herbergi I , tvöfaldur fataskápur, dúkur á gólfi,

Herbergi II, hjónaherbergi, fataskápur vegg í vegg, með snyrtiborði fyrir miðju, dúkur á gólfi.

Herbergi III, tvöfaldur fataskápur, parket á gólfi, vegghengt vinnuborð, föst hillusamstæða, notað sem vinnuherbergi í dag.

Herbergi IV, parket á gólfi, hilluskápur.

Sjónvarpshol afstúkað með viðarhillueiningu. Dagstofa með arinstæði. Útgengt á suður svalir úr dagstofu. Salir eru með glervegg á austurhlið.

Borðstofa er inn af dagstofu. Þaðan er gengið inn í eldhús.

Eldhús , sérsmíðuð innrétting, spanhelluborð og vifta, ofn í vinnuhæð, pláss fyrir uppþvottavél, ísskáp og örbylgjuofn/auka ofn í innréttingu, borðkrókur.

Í alrými, gangi og stofum er viðarparket. Í eldhúsi er harðpaket á gólfi.

Frá eldhúsi er gengið inn í þvottahús.

Þvottahús , sérsmíðuð innrétting með efri skápum. Gott vinnuborð og stálvaskur. Pláss fyrir tvær vélar. Handklæðaofn, hillur og skápur. Frá þvottahúsi er gengið inn í anddyri hússins.

Bílskúr, steypt gólf, rafmagnstafla hússins. Nánari upplýsingar í söluyfirliti .

Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |

Hléskógar 10 er tvíbýlishús á tveimur hæðum. Húsið er steypt, litað járn á þaki, timburgluggar og hurðar. Nánari upplýsingar í söluyfirliti .

Hellulögð stétt með hita, liggur framan við hús að stiga og bílskúr.

Lóð er gróin. Timburverönd er aftan við húsið til suðurs (sérnotaflötur neðri íbúðar).

Lóð er í óskiptri sameign beggja íbúða, gróðurhús og garðhús á lóð tilheyrir íbúð á efri hæð.

Lóðin er 1390.0 m² leigulóð í eigu Múlaþings, lóðarleigusamningur til 50 ára frá 9.3.2026, skjal nr. 446-E-000196/2026.

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:

Fasteignanúmer 217-5714. Hléskógar 10, Múlaþing.

Stærð: Íbúð 160 m². Bílskúr 64,4 m².

Brunabótamat: 106.350.000kr.

Fasteignamat: 73.300.000 kr.

Byggingarár: 1979.

Byggingarefni: Steypa.

Eignarhald:

01-0201- Séreign. Rými 01.0101, Íbúð 160 m². Brúttó m².

Landeignanúmer: 157761. Notkun Íbúðarhúsalóð 1.390,0 m².