Flúðasel 89
109 Reykjavík
Ásett verð: 53.900.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 96,3 m²
- Herbergi
- 3
- Svefnherbergi
- 2
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1976
- Fermetraverð
- 559.709 kr.
Lýsing
RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Rúmgóða og bjarta 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með útgengi á hellulagða verönd.
- Eldhús endurnýjað 2026
- Parket endurnýjað 2023
- Tvö rúmgóð svefnherbergi
- Útgengt úr stofu á verönd og garð
- Eignin getur losnað fljótlega eftir kaupsamning
SKOÐAÐU EIGNINA Í 3D - (EKKI ÞÖRF Á SÉR FORRITI)
Nánari lýsing:
Gengið er inn á stóran gang/ hol með parketi á gólfi og innbyggðum skáp.
Stofan er rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Úr stofunni er útgengt á hellulagða verönd. Útisvæðið nýtur sólar frá um kl. 12 og fram að sólsetri á sólríkum dögum.
Eldhúsið var endurnýjað árið 2026 og er opið að stofu. Stæði fyrir þvottavél og uppþvottavél. Góð tenging er á milli eldhúss og stofu sem myndar bjart og opið alrými.
Hjónaherbergið er mjög rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi.
Barnaherbergið er rúmgott með innbyggðum fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi með baðkari og flísum á gólfi.
Sérgeymsla á sömu hæð fylgir íbúðinni og er 5,6 m² að stærð. Hjólageymsla og þurrkherbergi eru í sameign.
Staðsetningin er góð með stutt í verslanir, leik- og grunnskóla, íþróttasvæði og aðra þjónustu. Einnig eru góðar samgöngur frá hverfinu og stutt í þjónustu í Mjódd og Smáralind.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / brynjar@remax.is