Langimói 7 íbúð 104

603 Akureyri

Ásett verð: 89.000.000 kr.

Langimói 7 íbúð 104
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
107,5 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2025
Fermetraverð
827.907 kr.

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Langimói 7 íbúð 104 - Nýbygging - Vönduð 4ra herbergja íbúð með sér inngangi á neðri hæð, endaíbúð í glæsilegu fjölbýli í Móahverfi - stærð 107,5 m²

Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu.

* Eignin er timburhús, krosslímdar timbur einingar, clt og klætt að utan með viðhaldsfrírri álklæðningu.

* Vandaðar innréttingar frá Tak innréttingum fyrir utan baðherbergi.

* Ísskápur með frysti og uppþvottavél fylgja með við sölu.

* Hvítar innihurðar.

* Loftskiptikerfi.

* Hljóðdúkur í loftum.

* Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning

Forstofa er með flísum á gólfi 60*60 og fataskáp.

Eldhús , Vönduð innrétting og eldunareyja. Ísskápur með frysti og uppþvottavél fylgja með við sölu.

Stofa og eldhús eru í opnu rými. Þar eru gluggar til tveggja átta og harðparket á gólfi. Gengið er út úr stofunni til vestur á steypta verönd.

Svefnherbergin eru þrjú , öll með harðparketi á gólfi og fataskápum. Stærð herbergja er skv. teikningum 8,3 , 13,3 og 14,5 m².

Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir með gráum flísum. Vönduð hvít innrétting og speglaskápur, upphengt wc og sturta með glerhurðum. Stæði er í innréttingunni fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.

Geymsla er með harðparketi á gólfi og fataskáp. Stærð geymslu er skv. teikningum 7,2 m².

Annað

- Sameiginlegt inntaksrými og vagnageymsla er fyrir miðju í húsinu á neðri hæðinni.

- Sameiginlegt hjólaskýli er fyrir framan húsið.

- Nánari skilalýsingu má nálgast hjá fasteignasölu.

- Byggingarverktaki: Valsmíði ehf.

Eignin er í einkasölu

Kaupandi greiðir skipulagsgjald eignar, 0,3% af brunabótamati eignar þegar það verður lagt á.

Þrívíddar teikningar eru eingöngu til hliðsjónar - eitthvað misræmi getur verið á milli þeirra og aðalteikninga.

Upplýsingar í skilalýsingu geta breyst á byggingartíma. Leitast verður við að halda sambærilegum gæðum byggingarhluta og íhluta, breytist þeir á byggingartíma.

Allt efni er birt með fyrirvara um hugsanlegar villur.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.