Hallkelshólar 107

805 Selfoss

Ásett verð: 39.900.000 kr.

Hallkelshólar 107
Tegund
Sumarhús
Stærð
70 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2006
Fermetraverð
570.000 kr.

Lýsing

Hallkelshólar, Grímsnes-og Grafningshreppi. Lokað svæði með rafmagnshliði.

Fasteignaland kynnir: Sumarhús við Hallkelshóla 107 inn á skipulögðu sumarhúsasvæði. Um er ræða 70 fm hús auk millilofts samkvæmt HMS. Húsið var byggt árið 2006 og hefur verið endurnýjað talsvert. Á á lóðinni er geymsla (bjálkahús) ca. 4 fm og dúkkuhús. Í þessu húsi er hitakútur fyrir neysluvatn og rafmagnsofnar. Svæðið er lokað með rafmagnshliði (símahlið).

Lýsing á eign: Forstofa með dúkaflísum á gólfi. Þrjú herbergi me parketi á gólfi, Tvö með góðu skápaplássi. Baðherbergi með parketi á gólfi, ljósri viðarinnréttingu. Sér rými með parketi á gólfi og sturtuklefa. Hol með parketi á gólfi og góðu skápaplássi. Stofa og eldhús í sama rými með góðri lofhæð og parketi á gólfi. Útgengi út á sólpall. Eldhúsið er með paketi á gólfi fallegri viðarinnréttingu og eldavél með keramik helluborði.

Milliloft: Skriðloft með parketi á gólfi.

Stór sólpallur með girðingu og skjólgirðingu.

Geymsla: Bjálkahús ca. 4 fm og nýtt fyrir garðáhöld.

Dúkkuhús er lóðinni.

Lóðin er 8.000 fm leigulóð til 40 ára frá árinu 2006.

Lóðarleiga um kr. 250.000 á ári.

Árgjald í félag sumarhúsaeiganda er um kr. 25.000 á ári.

Góða aðkoma og næg bílastæði

Möguleiki er að fá hluta af innbúi með í kaupum á eigninni.

Þetta svæði er lokað með rafmagnshliði (símahlið).

Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins. Stutt er í veiði, sundlaug, golfvöll, íþróttavöll og fallegar gönguleiðir. Selfoss er aðeins í ca. 18 km fjarlægð og því stutt í alla þjónustu. Frá Reykjavík eru aðeins um 70 km sé ekið um Hellisheiði. Styttra um Nesjavallaveg.

Upplýsingar gefa:

Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali, s. 893 1485, netfang: heimir@fasteignaland.is

Jón Smári Einarsson, löggiltur fasteignasali, s. 860-6400 , netfang: jonsmari@fasteignaland.is

Árni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali, s. 898-0508, netfang: arni@fasteignaland.is