Nónhamar 4

221 Hafnarfjörður

Ásett verð: 65.900.000 kr.

Nónhamar 4
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
79,7 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2023
Fermetraverð
826.851 kr.

Lýsing

Virkilega falleg 3ja herbergja endaíbúð á 3ju hæð ( efstu) við Nónhamar 4 í Hafnarfirði.

Eignin er alls 79,7 fm og eru allir fm innan eignar.

Eignin getur verið laus við kaupsamning!

Nánari lýsing:

Inngangur af svölum.

Forstofa með flísum á gólfi og skáp

Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, falleg innrétting og "walk-in" sturta. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi.

Eldhús og stofa flæða saman í fallegt og vel skipulagt alrými með útgengt út á góðar útsýnissvalir.

Eldhús með fallegri innréttingu úr Nero Oak frá GKS með hvítum efri skápum að hluta. Innfelldur ísskápur og uppþvottavél. Ofn í vinnuhæð.

Eldunareyja með háf og góðu geymsluplássi.

Hjónaherbergi með góðum skápum og parket á gólfi

Barnaherbergi með skáp og parketi á gólfi.

Geymsla er innan íbúðar með opnanlegum glugga, flísar á gólfi.

Sameiginleg hjóla-og vagnageymsla á jarðhæð.

Sameiginlegur garður með leiktækjum fyrir framan húsið.

- Gólfhiti.

- Lítið fjölbýli.

- Næg sameiginleg bílastæði.

- Gott útsýni út eigninni.

- Innréttingar og skápar frá GKS úr Nero oak.

- Blöndunartæki frá Tengi.

- Eldhústæki frá Ormsson: Spanhelluborð, ofn með blæstri, örbylgjuofn, innbyggð uppþvottavél eru AEG. Gufugleypir og innbyggður ísskápur eru Airforce.

- Lagnaleið fyrir mögulega rafhleðslutengingu er við hvert bílastæði.

Byggingaraðili er traustur verktaki til fjölda ára : Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. ( [link] )

Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og falleg útivistarsvæði.

Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.

[link]

[link]

[link]