Grandavegur 3

107 Reykjavík

Ásett verð: 98.800.000 kr.

Grandavegur 3
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
105,3 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1990
Fermetraverð
938.272 kr.

Lýsing

Guðrún Antonsdóttir fasteignasali kynnir: Mikið endurnýjaða, bjarta og fallega íbúð í góðu fjölbýli á þessum eftirsótta stað í borginni. Árið 2018 var íbúðin öll gerð upp. Nýtt harðparket lagt sem flæðir þröskuldalaust um alla íbúðina nema baðherbergi. Nýjar innihurðir. Nýtt eldhús með innbyggðum tækjum og opnað inn í stofu. Baðherbergi endurnýjað og hiti settur í gólf. Hue ljósasystem í öllum herbergjum. Sérsniðnar rúllugardínur í öllum herbergjum. Hurðir, parket og flísar eru frá Birgisson og allar innréttingar, skápar og heimilistæki eru frá HTH/Ormsson. Sjálft húsið hefur verið mikið endurnýjað undanfarin 3 ár, sjá texta að neðan.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðrún Antonsdóttir fasteignasali gsm 621-2020 eða gudrun@fastlind.is

Endurbætur á húsi 2023 - 2026: (upplistun er ekki tæmandi)

Nýtt þak og rennur, múrviðgerðir, tréverk lagað, svalir flotaðar, skipt um alla glugga sem þurfti, ný hurð sett í hjólageymslu og málað.

Í þessari íbúð var skipt um alla glugga og svalahurð í stofu.

Fjórar hleðslustöðvar voru settar upp árið 2023.

Nánari lýsing:

Forstofa: Komið er inná hol með parketi á gólfi. Tvöfaldur yfirhafnaskápur og hengi fyrir yfirhafnir.

Eldhúsið var uppgert árið 2018, er bjart og fallegt með dökkri innréttingu, efri og neðri skápar og stór eyja með span helluborði. Innbyggð uppþvottavél. Ísskápur með frysti er innbyggður frá HTH/Ormsson. Bakaraofn er í vinnuhæð

Borðstofa er við hlið eldhúss, mjög bjart rými með náttúrulegri birtu.

Stofan er rúmgóð og björt, þar sem veggur hefur verið fjarlægður sem lokaði af eldhús og stofu. Útgengt á svalir frá stofu sem snúa til suðvesturs. Sérsniðnar rúllugardínur eru fyrir gluggum, sem eru nýlega endurnýjaðir svo og svalarhurð.

Svefnherbergin eru þrjú, harðparket er á gólfum í þeim öllum og fataskápar.

Baðherbergið er glæsilegt og var tekið í gegn 2018. Veggir og gólf eru flísalögð. Salerni er upphengt, sturta, skápur er undir vaski. Tæki frá Tengi og gólfhiti.

Þvottahús er á hæðinni í sameign og deilist með einni annari íbúð.

Geymslan er í sameign með rúmgóðum hillum.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðrún Antonsdóttir fasteignasali gsm 621-2020 eða gudrun@fastlind.is