Þorrasalir 13 - íbúð 201

201 Kópavogur

Ásett verð: 112.500.000 kr.

Þorrasalir 13 - íbúð 201
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
125,8 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2015
Fermetraverð
894.277 kr.

Lýsing

Virkilega björt og rúmgóð 4ra herbergja, 125,8 fm íbúð á 2 hæð við Þorrasali 13, Kópavogi. Sér inngangur beint inn af bílaplani ofan við hús. Rúmgott alrými með stórkostlegu óhindruðu útsýni yfir golfvöll GKG í suðvestur að Vífilstöðum. Stórar yfirbyggðar svalir út af stofu. Bílastæði fylgir íbúðinni í bílakjallara. Húsið var byggt árið 2015.

Nánari upplýsingar veitir Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is

Nánari lýsing:

Komið inn í íbúðina um sér inngang. Íbúðin skiptist í forstofu með fataskápum, tvö svefnherbergi með fataskápum og einu auka herbergi sem búið er að opna og nýtist í dag sem sjónvarpsherbergi. Mjög rúmgóð stofa sem er opin inn í eldhús. Sér þvottahús og yfirbyggðar svalir. Ljósar stílhreinar flísar eru á öllum gólfum íbúðarinnar.

Eldhúsið með rúmgott með stein á borði, vönduðum tækjum og tvöföldum ísskáp. Góð vinnuaðstaða og mikið skápapláss. Hátt eldhúsborð með góðri aðstöðu. Borðstofa og stofa liggja saman í framhaldi af eldhúsi. Stórir gluggar í stofu sem gera íbúðina mjög bjarta með virkilega fallegu útsýni. Yfirbyggðar svalir eru 18,8 fm og nýtast allt árið sem framlenging af stofu. Svalirnar eru ekki inni í birtum fermetrum íbúðarinnar.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Rúmgóður sturtuklefi, upphengt salerni, handklæðaofn og falleg hvít innrétting með speglaskáp.

Sér geymsla fylgir íbúðinni í kjallara sem er 7,4 fm. Bílastæði í bílakjallara með hleðslustöð. Lyfta úr bílakjallara upp á hæð íbúðarinnar. Sameign er öll hin snyrtilegasta. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Næg bílastæði ofan við húsið.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - eignamidlun@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.