Orkureitur - D1 - 707

108 Reykjavík

Ásett verð: 188.900.000 kr.

Orkureitur - D1 - 707
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
152,9 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
2
Fermetraverð
1.235.448 kr.

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Sérmerkt bílastæði í bílageymslu fylgir íbúðinni!

Eignamiðlun og Safír byggingar ehf kynna með stolti nýjar í öðrum áfanga (D-húsi) á Orkureitnum við Suðurlandsbraut 38-44 og Grensásveg 2-6. Glæsilegt lyftuhús, sannkallaður sælureitur við Laugardalinn. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar með vönduðum Nobilia Innréttingum frá GKS, flísalögðum baðherbergjum en án megingólfefna. Gólfhiti er í öllum íbúðum sem og aukin lofthæð.

SAFÍR20 er fjármögnunarleið sem getur hentað vel til að binda minna eigið fé í húseign, lækka lántöku og greiðslubyrði. Tryggðu þér góða íbúð með skynsamlegri fjárfestingu og lægri greiðslubyrði á mánuði. Sjá nánar inná [link]

Orkureitur - Grensásvegur 2B-704 , íbúð 07-07 er 4ra herbergja, 152.9 fm íbúð. Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði án endurgjalds í 10 ár.

NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali í síma 899-8815, kari@eignamidlun.is

Smellið hér til að skoða heimasíðuverkefnisins Orkureiturinn.is

**Sækja söluyfirlit**

Orkureitur - Grensásvegur 2B-704 , íbúð 07-07 er 152.9 fm 4ra herbergja íbúð í nýju glæsilegu lyftuhúsi á einstaklega góðum stað rétt við Laugardalinn.

Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 152.9 fm með sérgeymslu í kjallara hússins.

Innréttingaþema er Safír Premíum (900). Val þegar kemur að innréttingum og frágangi. Fimm innréttingaþemu í boði frá Nobilia (Easytouch frontar) og möguleiki á innréttingum frá Leicht (spónlagðar). Steinn á borðum. Vönduð eldhústæki frá Siemens, Elica og Bora. Vínkælir frá Temptech. Innfelldar innihurðir. Innbyggð Vola blöndunartæki á baðherbergjum.

Afhending íbúðanna: Íbúðir í D1 eru tilbúnar til afhendingar. Gert er ráð fyrir að íbúðir í D2 verði til afhendingar í júní/júlí 2026.

Nánar um Orkureitinn:

Bjartar og vel hannaðar íbúðir

Á Orkureitnum verða byggðar 436 glæsilegar íbúðir þar sem lögð er alúð við að byggja upp framtíðarheimili þar sem vellíðan íbúa er höfð að leiðarljósi. Við hönnun íbúða er lögð megináhersla á vönduð byggingarefni, hagnýtt skipulag, góða birtu og útsýni. Hver íbúð hefur eigin búnað til loftskipta sem hámarkar loftgæði. Stórt bílastæðahús er tengt byggingum neðanjarðar en auk þess eru verslunar- og þjónusturými á jarðhæð með fjölbreyttri þjónustu við íbúa eins og veitingahús og kaffihús. Fyrsta áfanga (A-húsi) er lokið en áformað er að allri uppbyggingu á svæðinu verði lokið í lok árs 2027.

Framtíðarheimili á Orkureitnum

Orkureiturinn er skipulagður og hannaður með sjálfbærni og vistvæn sjónarmið að leiðarljósi. Sérstök áhersla er lögð á endurnýtingu orku og blágrænar ofanvatnslausnir. Á byggingartíma er lögð áhersla á endurvinnslu byggingarefnis, jarðvegs og gróðurs á svæðinu. Skipulag reitsins er það fyrsta í Reykjavík sem vottað er af BREEAM Communities vistvottunarkerfinu og hefur það fengið næsthæstu einkunn, sem er „Excellent“. Jafnframt er stefnt að því að allar íbúðir á reitnum verði Svansvottaðar.

Allt hverfið í kringum Orkureitinn er í mikilli uppbyggingu. Staðsetningin er í miðju verslunar- og þjónustukjarna í Skeifunni, Glæsibæ og Múlunum, svæði sem er miðsvæðis í þróunarás Reykjavíkurborgar við væntanlega Borgarlínu.

Nánari upplýsingar gefa löggiltir fasteignasalar Eignamiðlunar:

Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815 , kari@eignamidlun.is

Rögnvaldur Örn Jónsson löggiltur fasteignasali, sími 660-3452 , rognvaldur@eignamidlun.is

Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali, sími 839-1600 , gunnarbergmann@eignamidlun.is

Ólafur H Guðgeirsson löggiltur fasteignasali, sími 663-2508 , olafur@eignamidlun.is

Guðlaugur Ingi Guðlaugsson löggiltur fasteignasali, sími 864-5464 , gudlaugur@eignamidlun.is ***

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook