Helgafellsbraut 19

900 Vestmannaeyjar

Ásett verð: 79.900.000 kr.

Helgafellsbraut 19
Tegund
Einbýlishús
Stærð
285,599998474121 m²
Herbergi
7
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
3
Byggingarár
1927
Fermetraverð
279.762 kr.

Lýsing

Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- dora@eyjaeignir.is og Eyjaeignir fasteignasala kynna í almennri sölu: Helgafellsbraut 19 í Vestmannaeyjum sem er fallegt 5 herbergja einbýlishús á þremur hæðum í austurbænum. Húsið er byggt úr holsteini árið 1927 og er 285,6 m2 þar af er bílskúr 85,6 m2 byggður árið 2022. Eignin hefur verið töluvert undirnýjuð undanfarin ár, skolp hefur verið endurnýjað, húsið er einangrað og klætt. Á aðalhæð eru ný gólfefni ásamt nýlegu eldhúsi. Nýjir ofnar og lagnir eru í öllu húsinu, búið er að skipa um flesta glugga. Möguleiki á að útbúa séríbúð á neðri hæðinni, eigendur eru byrjaðir á þeirri vinnu. Búið er að einangra útveggi, leggja nýjar raflagnir að hluta, hljóðeinangra á milli hæða. Stór eign með mikla möguleika, glæsilegt útsýni. Skipti á eign á Selfossi koma til greina.

BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið dora@eyjaeignir.is eða í síma 8611105

Nánari lýsing:

Aðalhæð :

Forstofa : Flísar á gólfi, fatahengi

Snyrting : Flísar á gólfi, wc, nett innrétting, vaskur, opnanlegur gluggi

Eldhús : Parket á gólfi, nýleg innrétting frá Ikea, nýleg tæki

Stofa : Parket á gólfi

Efri hæð:

Herbergi : Parket á gólfi, skápur

Herbergi : Parket á gólfi

Herbergi : Parket á gólfi

Baðherbergi : Dúkur á gólfi, wc, nett innrétting,Sturta, opnanlegur gluggi

Neðri hæð - sérinngangur

Þvottahús : Steypt gólf, innrétting

Herbergi : Flotað gólf, á eftir að klæða veggi,nýr gluggi fylgir

Herbergi : Flotað gólf, á eftir að klæða vegg, nýr gluggi fylgir

Snyrting : Steypt gólf, wc, tengt fyrir sturtu

Bílskúr : Steypt gólf, byggður 2022, 85,6 m2, mikil lofthæð, ný bílskúrshurð og gönguhurð.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.

Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Eyjaeignir fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.