Hrísrimi 9 - íbúð 303

112 Reykjavík

Ásett verð: 65.800.000 kr.

Hrísrimi 9 - íbúð 303
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
108,6 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1991
Fermetraverð
605.893 kr.

Lýsing

Viltu fasteignir kynnir fallega, rúmgóða og bjarta 2ja-3ja herbergja íbúð við Hrísrima 9, Grafarvogi

Aukin lofthæð í hluta, vestur svalir ,mikið útsýni og stæði í bílageymslu.

Á sölusíðu eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit ásamt öðrum sölugögnum eignarinnar.

Íbúðin sjálf er skráð 75,5m2. Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu árum. Íbúðin skiptist í forstofu/gang, 1-2 svefnherbergi , stofu með vestur svölum , baðherbergi og eldhús . Í kjallara er sér bílastæði í bílageymslu og innaf því geymsla sem fylgir íbúðinni, samanlagt skráð 33,1m2

Nánari lýsing:

Forstofa/hol: Frá sameign er gengið í góða forstofu/gang með tvöföldum innbyggðum fataskáp. Harðparket á gólfi.

Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð samliggjandi við eldhús. Harðparket á gólfi.

Eldhús: Eldhúsið er með fallegri endurnýjaðri L-laga innréttingu. Innbyggð uppþvottavél. Frá stofu er gengið út á góðar vestursvalir íbúðarinnar. Fallegt útsýni til Esju og yfir sundin blá.

Baðherbergi: Fallega endurnýjað flísalagt gólf. Veggir málaðir og/eða með veggfóðri. Sturtuklefi í horni og vaskaskápur með handlaug. Tengi fyrir þvottavél á baðherbergi.

Hjónaherbergi : Gott og bjart herbergi með harðparket á gólfi.

Svefnherbergi I : Í rými sem teiknað er sem geymsla á teikningu er búið að koma fyrir barnaherbergi.

Háaloft: Yfir hluta íbúðar er risloft sem nýtist vel sem geymsla.

Bílageymsla: Eigninni fylgir sér stæði í lokaðri bílageymslu .

Geymsla: Við hlið bílastæðis í í bílageymslu er sér geymsla fyrir íbúðina. Mjög þægilegt aðgengi.

Hjólageymsla: Sameiginleg hjólageymsla fyrir íbúa er á 1.hæð

Frábært tækifæri til að eignast 2ja-3ja herbergja, mikið endurnýjaða íbúð með frábæru útsýni

Stutt er í alla þjónustu, skóla, leikskóla, heilsugæslu og matvörubúðir. Gróið og fallegt hverfi.

Nánari upplýsingar veitur Heiðrekur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í 845-9000 / heidrekur@viltu.is eða í Viltu fasteignir í 583-5000 / hvad@viltu.is

Viltu fasteignir bjóða fasta söluþóknun frá 995.000 kr.

Allt innifalið.

Kynntu þér málið á Viltu.is

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.