Grásteinsmýri 1 - íbúð 101

225 Garðabær

Ásett verð: 105.200.000 kr.

Grásteinsmýri 1 - íbúð 101
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
118,2 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2025
Fermetraverð
890.017 kr.

Lýsing

Eignamiðlun auglýsir 2ja - 5 herbergja íbúðir í nýbyggingu við Grásteinsmýri 1, 225 Álftanesi. Um er að ræða 30 íbúðir, stærðir frá 63,2 fm - 144,8 fm. Allar íbúðir með bílastæði í lokuðu bílastæðahúsi. Afhending íbúða er við kaupsamning. Fyrir þessar íbúðir er í boði 20% eignahlutdeild ÖXAR20 sjá nánar hér leitið nánari upplýsinga hjá sölumanni. Heimasíða fyrir verkefnið hér

Íbúð merkt 101 - 4ra herbergja 118,2 fm íbúð á fyrstu hæð með þrem svefnherbergjum og rúmgóðum sérafnotareit. Rúmgott svefnherbergi og tvö minni barnaherbergi, baðherbergi með atstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, eldhús með stórri vinnueyju opið inn í borðstofu og stofu. Bílastæði í bílakjallara merkt B08. Virkilega vel skipulögð íbúð.

Nánari upplýsingar veitir: Gunnar Bergmann löggiltur fasteignasali í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is

Nánari lýsing:

Komið er inn forstofu með fataskápum.

Baðherbergi: Baðherbergi með sturtuklefa. Handlaug, handklæðaofn og upphengt salerni. Flísar á gólfum og veggjum. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara inn á baðherbergi.

Eldhús: Eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi frá Axis. Ofn í vinnuhæð, góð vinnuaðstaða. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél frá.

Svefnherbergi: Rúmgott með góðu skápaplássi. Barnaherbergi eru tvö með skápum.

Stofa/ borðstofa: Rúmgóð setustofa og borðstofa opið inn í eldhús. Gengið er út á sérafnotarétt út frá stofu, stór rennihurð.

Bílakjallari og geymsla: Bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgir íbúðinni ásamt 8,7 fm geymslu.

Íbúðirnar verða afhentar án gólfefna, nema á votrýmum sem verða flísalögð. Eldhúsinnréttingar eru sérsmíðuð af vandaðri gerð frá Axis.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati. (0,4% ef um er að ræða fyrstu eign)

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr kauptilboði.

Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - gunnarbergmann@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.